breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni sína ræðu. Hlustum á það sem Grindvíkingar kalla eftir, er eitt af því sem hv. þingmaður sagði að við þyrftum að gera og ég held við hljótum öll að geta verið sammála um það. Við þurfum að hlusta á hver þörfin er og því miður virðist það ekki hafa skilað sér nógu vel inn í þær aðgerðir sem gripið hefur verið til. Hér nefndi hv. þingmaður stuðning við atvinnurekendur til að greiða laun og rekstrarstuðning annan til þess að geta haldið floti á starfsemi sinni þó að húsnæðið sé á bannsvæði Grindavíkur en þetta húsnæði getur haldið utan um allt það fé sem fyrirtækið hefur til ráðstöfunar.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, vegna þess að ég veit að hann hefur ágæta reynslu af atvinnurekstri: Segjum að við eigum litla hamborgarasjoppu í Grindavík og hún bara lokar vegna þess að bærinn er lokaður og það er enginn að koma þangað heldur til að kaupa neitt. Dugar að vera að mjatla rekstrarstuðningi og stuðningi til greiðslu launa eða væri kannski skynsamlegri ráðstöfun á opinberu fjármagni að leysa reksturinn út úr eigninni, að borga út steinsteypuna þannig að þessi hamborgarasjoppa geti opnað í Sandgerði eða Njarðvík eða austur á Selfossi og þannig orðið aftur sjálfbær rekstur utan bæjarfélagsins þangað til það er óhætt að koma heim aftur? Mig langar að spyrja um þetta, hvort það verði ekki að stíga inn með auknum krafti í uppkaup á atvinnuhúsnæði til að fólk geti flutt sjálfbæran atvinnurekstur út af hættusvæðinu og haldið þannig starfsemi áfram, (Forseti hringir.) haldið þannig áfram fólki í vinnu án þess að til þess þurfi einhverjar sporslur frá ríkinu.