154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:20]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þetta andsvar, góð hugmynd. Ég veit t.d. að Hérastubbur bakari var með þannig rekstur að hann gat selt sína vöru víða um landið af því að hann var í þeirri sérstöðu að selja vegan brauð. Hvað kemur hamborgarastaðnum við sem þú minnist á þá finnst mér það góð hugmynd að leysa hann úr læðingi og hjálpa honum að opna í Sandgerði. Góð hugmynd, ég þakka fyrir ábendinguna.