154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:21]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Já, ég ætlaði nú ekkert að taka þetta í seinna andsvari en ég bara mátti til vegna þess að hv. þingmaður nefndi Hérastubb bakara sem við ræddum einmitt hér í gær sem svo gott dæmi um fyrirtæki innan Grindavíkur sem er með ákveðna sérstöðu og hefur náð markaði langt út fyrir bæjarmörkin. Vegan samfélagið hér á höfuðborgarsvæðinu — það heyrðist grátur og gnístran tanna þegar það bakarí þurfti að loka vegna þess að hvergi annars staðar gastu fengið jafn djúsí vegan sætmeti. Ef ríkið gæti fundið einhverja leið til þess að hjálpa þeim rekstraraðila að koma undir sig fótunum annars staðar, vegna þess að ég ímynda mér að upphafskostnaður á svona rekstri geti verið umtalsverður, þá væri strax kominn grundvöllur fyrir þeim rekstri.

Önnur fyrirtæki hafa hins vegar átt auðveldara með þetta, fyrirtæki sem mögulega hafa átt laust eigið fé og þess vegna getað komið sér inn í húsnæði annars staðar eða fyrirtæki sem þegar Grindavík lokaði voru með starfsstöðvar fyrir utan sveitarfélagið. Hér var nefnt Hjá Höllu í gær, sem ef ég man rétt var einmitt með framleiðsluaðstöðu í Sandgerði og gat þess vegna einfaldlega fært allan fókus þangað þó að húsnæði innan Grindavíkur væri ónothæft, þannig að hér sér maður svo augljós sóknarfæri fyrir ríkið til að stíga inn með ekki endilega einu sinni aukna fjármuni vegna þess að það er nú þegar verið að leggja fyrirtækjum til pening til að styðja við rekstur eða greiðslu launa heldur bara að gefa fyrirtækjunum aukið svigrúm til að meta hvar stuðningur ríkisins gæti skilað rekstri þeirra mestum ábata. Það vantar aðeins að hlusta á raddir heimafólks með þetta vegna þess að þær eru alveg skýrar. (Forseti hringir.) Þær vilja möguleikana á uppkaupum á atvinnuhúsnæði til að fyrirtækin geti haldið áfram að blómstra.