breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna. Mér finnst aldrei nógu mikið gert fyrir Grindvíkinga en það er af því að ég er hlutdrægur. Þetta er ekki fordæmalaust. Við lentum í Vestmannaeyjagosinu fyrir 51 ári síðan og það voru móðuharðindi 1918, þannig að á kannski 50, 60, 70 ára fresti lendum við í svona náttúruhamförum og ég held að við verðum að vera búin undir það að taka þátt í því og hjálpa þeim sem þurfa á hjálp að halda. Ég er alveg sammála síðasta ræðumanni, ég vil gera sem mest fyrir Grindvíkinga til að þeir geti haldið áfram sínu lífi og byggt upp Grindavík eins og hún á skilið að vera byggð upp.