154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:24]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Við ræðum hér afskaplega mikilvægt mál sem væntanlega er ekki það síðasta af sinni tegund, því miður. Það er náttúrlega ótrúlegt að upplifa það að þremur árum eftir að eldsumbrot hófust þá stöndum við í þeim miðjum, ef þá það. Það er rétt í upphafi að nefna það að ég styð allt það sem kemur fram í þessu frumvarpi. Ég verð hins vegar að gagnrýna með hvaða hætti ýmislegt er orðað í greinargerðinni.

Í fyrsta lagi verð ég líka að nefna að mér finnst seinagangur felast í því að starfshópur um atvinnulífið sé ekki settur á laggirnar fyrr en tveimur og hálfu ári eftir að fyrsta eldgosið varð. Auðvitað var það alveg ljóst að þegar fólk þurfti að flýja bæ þá stóð atvinnulífið berskjaldað eftir, bæði vegna þess að í einhverjum tilfellum er ekki hægt að starfa þar tímunum saman og í öðru lagi vegna þess að viðskiptavinirnir eru horfnir á braut. Þar kemur nú vinkill sem ég ætla að ræða um á eftir varðandi hvort réttmætt sé að kaupa upp atvinnuhúsnæði eða ekki.

Í öðru lagi geri ég athugasemd við það að því skuli vera slegið föstu nánast að í einhverjum tilfellum sé þessum úrræðum, sem er verið að framlengja, að ljúka. Mér finnst allt of bratt að fullyrða slíkt. Og af því að ráðherra ræddi hér um í gær að ríkisstjórnin hefði náð utan um samfélagið og utan um vandann þá er alveg sjálfsagt að hrósa bæði ríkisstjórn og þingi fyrir að hafa brugðist hratt við og unnið öll mál hratt. En ég held að það sé ótrúlega erfitt að fullyrða eitthvað um að við séum búin að ná utan um veruleika sem við skiljum ekki enn þá. Þetta verður viðvarandi verkefni og við þurfum einfaldlega að gefa fyrst og fremst fyrirheit til fólksins þarna um að við munum bregðast við og horfa jákvæðum augum á þætti sem við áttuðum okkur ekki á vegna þess að það er ekki hægt að sitja og búa til einhverja meginreglu um aðstæður heils samfélags. Það eru margir sem hafa sagt: Við skiljum ykkur. En ég verð að segja, hafandi lifað svona nokkuð áfallalausu lífi, að ég væri að segja ósatt ef ég segðist skilja aðstæður þessa fólks af því að ég held að þær séu í rauninni illskiljanlegar nokkrum öðrum en þeim sem verða fyrir þeim.

Við erum sem sagt í rauninni að tala um framlengingu á sérstökum húsnæðisstuðningi. Við erum að tala um framhald við tímabundinn launastuðning og við erum að tala um að rýmka tímabundinn rekstrarstuðning. Þetta er allt mjög mikilvægt en við þurfum líka að fara að beina sjónum okkar að því fólki og lögaðilum sem úrræðin ná ekki utan um. Við erum búin að gera þetta með almennum hætti og það var mjög mikilvægt að forgangsraða þannig að fyrst yrði það gert. En síðan þegar það er komið þá nægir ekki bara aftur og aftur að framlengja sömu úrræðin. Þá þurfum við að fara að beina sjónum okkar að einstökum tilfellum vegna þess að aðstæður einstaklings í samfélaginu eru alveg jafn erfiðar og mikilvægt að bregðast við þeim þótt hann falli ekki inn í eitthvert mengi níutíu prósentanna. Við hljótum að vera sammála því að þetta snúist um alla.

Það eru ýmsir hópar sem passa ekki alveg inn í þau úrræði sem við höfum búið til. Þar er m.a. fólk sem af einhverjum ástæðum, þær geta verið óteljandi, býr annars staðar en í Grindavík, vegna atvinnu, vegna náms eða annarra hluta, en á húsnæði í Grindavík en hefur hins vegar ekki valið að leigja það út einhverjum sem hefur lögheimili þar þannig að það er ekkert lögheimili þar. Í þessu húsnæði getur legið ævisparnaður fólks og það er mjög brútalt, gróft finnst mér, að horfa algerlega fram hjá þessu. Mér skilst að þetta séu eitthvað rúmlega 100 eignir og kostnaðurinn við þetta sé um 6 milljarðar. Það eru auðvitað miklir peningar en þetta eru ekki rekstrarútgjöld, þetta er einskiptiskostnaður fyrir ríki og við sem samfélag hljótum að geta búið þannig um hnútana að ef eitthvað gerist þá verði fólk ekki fyrir varanlegu tjóni. Þetta getur haft áhrif á fólk alla ævi. Ef þarna hefur t.d. verið eign sem hefur átt að mynda lífeyrissjóð þá getur myndast kostnaður auðveldlega annars staðar.

Í öðru lagi eru það lögaðilarnir. Það er oft með atvinnufyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins að þar er erfiðara að fá fólk til vinnu. Stundum hafa fyrirtækin bara þurft einfaldlega að kaupa húsnæði til að tryggja starfsfólki búsetu. Þessum aðilum er ekki gert kleift að selja sínar eignir. Ríkið mun ekki kaupa þær samkvæmt yfirlýsingu frá ríkisstjórninni. Ég átta mig á því að þarf að draga einhvers staðar línu en mér finnst a.m.k. að við eigum að taka opna umræðu um þetta, ekki bara afgreiða þetta burtu af borðinu án þess að þingið fái að fjalla um þetta. Þetta er svipuð tala og eignir einstaklinga án lögheimila. Ég held að þetta muni einhverjum nokkrum tugum þannig að þetta eru svona 8 milljarðar þannig að þar eru líka stórir peningar. En gleymum því ekki að þetta eru ekki rekstrarútgjöld, þetta er peningur sem við þurfum og ætlum að leyfa okkur að borga upp, á einhverjum áratugum jafnvel.

Í þriðja lagi eru það uppkaup á atvinnuhúsnæði. Þá langar mig að koma aftur inn á það: Getur einstaklingur sem rekur fyrirtæki í Grindavík átt einhverja kröfu á ríkið, að það kaupi atvinnuhúsnæði hans? Í sjálfu sér örugglega ekki, það getur vel verið að lögvarinn réttur sé enginn, en svo byggjum við okkar samfélag á ýmsu öðru eins og siðferði og öðru slíku og við skulum bara horfast í augu við hvað hefur gerst á síðustu þremur árum. Fyrst er gefin fyrirskipun um að fólk skuli rýma bæinn sinn. Síðan koma aðgerðir í framhaldi af því sem gera fólki kleift að selja húsnæðið og flytja annað, flytja burt úr bænum, og getum við þá ekki verið sammála því að það sé alla vega ekki hafið yfir vafa að sami aðili og kaupir hreinlega viðskiptavinina burtu af svæðinu þurfi kannski að bera einhverja ábyrgð á því að skilja það fólk ekki eftir algerlega slyppt og snautt? Þannig að mér finnst það ekki sjálfsagt mál að afskrifa það að við kaupum upp atvinnuhúsnæði.

Í fjórða lagi þurfum við að fara að beina sjónum okkar að samfélagslegum eignum og verðmætum og þá er ég að tala ekki síst um eignir sveitarfélaganna. Þetta eru umtalsverðar eignir. Þetta geta verið skólar, þetta eru íþróttahús, þetta eru íþróttavellir og kirkjur og alls konar hlutir. Mér skilst að fasteignafélagið Þórkatla eigi auðvitað að sjá um það en það þarf einhvern veginn að fara að liggja fyrir með hvaða hætti það á að vera vegna þess að við sem höfum komið að sveitarstjórnum áttum okkur á því að þeim er nokkuð naumt skammtað og fá nánast allar sínar tekjur í gegnum útsvar eða þá gatnagerðargjöld og uppbyggingu sem augljóslega mun ekki eiga sér stað þarna þannig að þetta verður tekjulaust sveitarfélag. Það þarf einhvern veginn að tryggja að það verði eitthvert peningaflæði af því að það er ótrúlega vond meðferð á eign að halda henni ekki við.

Raunar þarf Þórkatla líka að hugsa um allar þessar eignir einstaklinga sem er verið að kaupa. Hvaða áhrif hefur það ef þetta teygist yfir þrjú, fjögur, fimm ár ef menn mála ekki, ef menn hirða ekki garða, ef menn halda ekki við þökum? Eignirnar snarlækka í verði, hríðfalla og það þarf einhvern veginn að fara að ræða það líka að það þarf að halda hlutum við. Mér finnst það ekkert hafa verið gert. Það getur vel verið að það séu áætlanir um það og það getur vel verið að Þórkatla sé algerlega með puttann á þessum púls en við þurfum að ræða þetta líka.

Síðan eru annars konar ýmis önnur tilvik sem geta verið snúin, t.d. í einhverjum tilfellum þar sem mjög mikið hefur verið lagt í einbýlishús er fasteignaverðið hærra en brunabótamatið, sem er andlag þess verðs sem greitt er fyrir. Þá auðvitað getur fólki sviðið að tapa einhverjum tugum milljóna jafnvel, þannig að við verðum að hafa skilning á því. Ég er ekki að segja að við getum mætt öllum þessum tilvikum en við þurfum að hafa skilning á því að fólk er sárt.

Síðan hefði verið miklu betra ef við hefðum ekki búið við þennan húsnæðisskort sem við erum búin að lifa við í mörg ár. Af því að hann var til staðar þá hefði ekki verið mikil áhætta fólgin í því á fyrsta degi að hrinda af stað einhvers konar áætlunum, aðgerðum við það að byggja hérna einfalt íbúðarhúsnæði með innfluttum einingum eða innlendum einingum jafnvel vegna þess að það er vara sem hefði þá alltaf hvort sem er getað nýst inn á markaðinn.

Að lokum langar mig bara að nefna að það er alveg rétt að við munum það að þótt við munum líklega og vonandi ekki sjá atburði af þessari stærðargráðu alveg í bráð þá höfum við samt sem áður og munum verða fyrir miklum áföllum. Þótt það varði kannski ekki heilan bæ þá getur það varðað heilt samfélag. Ég tala um snjóflóðin í Neskaupstað, á Vestfjörðum, aurskriðurnar á Seyðisfirði; áföll sem hafa skilið eftir samfélög í miklum sárum. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta, að við ættum kannski að nýta þær aðgerðir og þá umræðu sem hefur átt sér stað um þessa risastóru aðgerð núna til þess einhvern veginn að sníða agnúa af og búa til einhverjar almennar reglur þar sem réttlæti ríkir — af því að á Seyðisfirði var það t.d. þannig að ef hús fór vegna aurskriðunnar fengu eigendur þess meira bætt heldur en nágrannarnir þar sem húsið fór sannarlega ekki en það mátti ekki búa þar áfram. Það er ýmislegt sem við þurfum að laga.

Annað sem mér finnst að við eigum að gera, það kostar ekki mikla aura en við á þinginu gætum ákveðið það, er að við ættum auðvitað að verja peningum til fræðafólks í háskólunum til að gera rannsókn yfir lengri tíma á því hvaða afleiðingar þessir atburðir hafa á samfélög, hafa á börn og unglinga. Það skiptir nefnilega alveg máli að kortleggja þetta.

Að lokum ætla ég að nota síðustu mínútuna í það að segja að við erum sífellt að samþykkja ný lög og fjárauka og við gerum það með glöðu geði af því að við eigum að standa saman. En við hljótum líka að benda á óábyrga fjármálaáætlun, vegna þess að ofan á þennan kostnað sem við erum að sjá vegna Grindavíkur þá erum við með miklar fjárhæðir vegna dýrra kjarasamninga og við erum með erfiðleika í efnahagsmálum og mikla undirliggjandi spennu og það verður að gera þá kröfu til ríkisstjórnar að hún mæti þessum hlutum með ábyrgum hætti með því að afla tekna, vegna þess að þetta verður aldrei gert bara með aðhaldi. Það er ekki hægt að skera endalaust niður í þjónustu sem er nú þegar vanfjármögnuð. Það er heldur ekki hægt að gera það sem mér virðist hæstv. fjármálaráðherra ætla að gera, að hækka bara endalaust yfirdráttarheimildina.