breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir ræðu hans. Ég hjó eftir því þegar talað var um húsnæði og heimili fólks í Grindavík að hv. þm. Tómas A. Tómasson benti á það að íbúðarhúsnæði er íbúðarhúsnæði. Af hverju í ósköpunum þarf ríkisstjórnin að flækja hlutina svona gífurlega? Þetta er ekkert flókið. Ef fólk býr í íbúðarhúsnæði ættu að gilda alveg nákvæmlega sömu reglur um það. Það á að tryggja það. Við vitum auðvitað að þetta er sjómannabær. Fyrirtæki í Grindavík hafa keypt útgerðir úti á landi. Fólk sem hefur búið úti á landi hefur flutt til Grindavíkur og á eign úti á landi en hefur keypt aðra eign í Grindavík og hefur kannski lögheimili úti á landi. Þetta fólk myndi lenda í stökustu vandræðum. Ég hef oft furðað mig á því hvers vegna ríkisstjórnin býr til aukavandamál til að skilgreina hver á hvaða húsnæði, hvernig það hefur verið keypt og hvort lögheimili er á bak við það. Hver hefur besta fjárfestingin verið á Íslandi undanfarin ár? Jú, að kaupa húsnæði. Sumir hafa ákveðið að kaupa sér íbúðarhúsnæði í Grindavík og leigja það út. Fólk á kannski annað húsnæði og hefur lögheimili þar en leigir hitt út og hugsar það sem lífeyrissjóð sinn. Þá er sagt við viðkomandi: Nei, við ætlum ekki að kaupa það af því að þú býrð ekki í húsnæðinu. Finnst mönnum ekki eðlilegt að einfaldara hefði verið að segja: Íbúðarhúsnæði þar sem einhver býr, og getur sannað að hafi verið notað sem íbúðarhúsnæði, það er keypt?