154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:42]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst út af fyrir sig ekkert endilega gagnrýnivert að fyrst hafi verið komið fram með þessa almennu reglu, vegna þess að það skipti máli að fólk fengi skilaboðin strax. Síðan líður tíminn og menn fara að skoða þetta og átta sig á því að það eru sérstök tilfelli, alveg eins og hv. þingmaður nefndi. Það geta verið óteljandi ástæður fyrir því að fólk býr annars staðar en á lögheimili. Kannski 30% þingmanna eru neydd til að vinna í Reykjavík en eiga heimili sín annars staðar. Þeir þurfa annaðhvort að leigja eða eiga á tveimur stöðum og væntanlega þurfa þeir þá að velja á milli. Sjómenn eru aðrir. Ég held að fæst dæmin séu einhverjar fjárfestingar eins og hv. þingmaður talaði um, en auðvitað skiptir það líka máli. Við þurfum vissulega að draga einhvers staðar línu í sandinn en við þurfum að gera það þannig að réttlæti sé í því og að við spörum ekki aurinn og köstum krónunni í þeim skilningi að fyrir tiltölulega lágar upphæðir í heildarsamhenginu skiljum við bara heilu fjölskyldurnar eftir í mikilli ógæfu.

Ég hitti mann í BYKO sem hafði verið að dunda sér við að byggja með syni sínum, sem er í skóla í Reykjavík, húsnæði á mörgum árum í Grindavík. Þetta eru orðin verðmæti upp á einhverja tugi milljóna. Þetta fæst ekki bætt. Þarna er harðduglegt fólk sem hefur reynt að koma sér upp eignum skilið eftir. Mér finnst því a.m.k. að við þurfum að eiga upplýsta umræðu um þetta, að það nægi ekki að ríkisstjórnin segi: Við ætlum ekki að gera þetta.