breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er alveg innilega sammála honum að mestu leyti. Annað sem mig langar að spyrja hann um varðar náttúruhamfaratryggingu. Maður trúir stundum ekki eigin augum þegar maður les um það hvernig náttúruhamfaratrygging skilgreinir tjón. Ég spyr mig hvort við þingmenn þurfum ekki að athuga með það hvaða reglur gilda þar, vegna þess að þær reglur virðast gilda að ef húsið er heilt en þú kemst ekki að því, af því að sprungur eru úti um allt, þá er það ekki bætt, þótt þú getir ekki nýtt það á nokkurn hátt. Í einu tilfelli var sprunga í gegnum allt húsið en samt var sagt: Þetta er allt í lagi, það er hægt að gera við þetta. Þá færðu ekki neitt. Eða kannski voru það bara 5%, sem allir sáu að myndi kosta þvílíka fjármuni að gera við. Ég spyr mig hvort þarna sé ekki eitthvað sem ríkisstjórnin ætti að endurskoða og við þurfum að taka á.