154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:45]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Jú, ég held að sjálfsagt sé að endurskoða allt í ljósi þessara stóru og nýju atburða og náttúruhamfaratrygging hefur kannski ekki endilega gert ráð fyrir að svona aðstæður gætu komið upp. Ég get í raun ekki svarað til um það hvort einhver ósanngirni felist í því að borga 5%, 10%, 20% eftir atvikum. Það hlýtur að byggjast á mati verkfræðinga eða einhverra matsmanna a.m.k., en auðvitað hlýtur það að flokkast undir altjón ef það má ekki fara inn í bæ og búa í honum. Ég er sammála þingmanninum um að auðvitað eigum við núna að nota reynsluna af þessum atburðum til að fara betur yfir þetta heildstætt. Alveg eins og ég nefndi í ræðunni þá getur vel verið að ýmsar af þeim lausnum sem við höfum verið að smíða að undanförnu geti passað betur inn í almenna reglugerð, vegna þess að fólki á heldur ekki að vera refsað þó að það komi bara ein spýja inn í bæ og taki bara eitt hús. Það er alveg jafn mikil ógæfa eins og þegar heilt byggðarlag fer, eða fyrir það fólk.