breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Forseti. Mig langaði einmitt að ræða við hv. þingmann um lausnirnar sem hann talaði um í andsvari og í ræðunni. Ég hef smááhyggjur af því að það sé einmitt ekki verið að skoða allar lausnir og allar sviðsmyndir, kannski helst þær sviðsmyndir sem enginn vill í raun og veru fara út í og vill ekki einu sinni hugsa um af því að alltaf er talað um að það verði að byggja upp Grindavík að nýju. En það er oft þannig með sviðsmyndirnar að til að átta okkur á þeim möguleikum sem eru til staðar, samhengi hlutanna, þarf stundum að skoða svörtustu sviðsmyndirnar af einhverri alvöru. Það gefur okkur ákveðið tilfinningalegt akkeri eða eitthvað því um líkt þannig að við getum horfst í augu við það þegar verstu sviðsmyndirnar gerast. Ef varnargarðarnir halda ekki, hvað þá? Eða ef staðan eins og hún er í dag heldur áfram næstu fimm áratugina, eða eitthvað svoleiðis?Einhverjir eldfjallafræðingar eru að segja að þetta klárist núna bara í sumar og þá ljúki þessu kerfi. Gefum okkur að það sé rétt. Það er kannski besta staðan sem uppi er í dag. Hvað þýðir það fyrir uppbyggingu næstu ára? Hver er sú sviðsmynd, því að ég hef heyrt þá sviðsmynd að það sé í rauninni ekki hægt að fara í neina uppbyggingu fyrr en eftir tvö ár. Þá erum við að tala um skóla og ýmislegt svoleiðis fyrir krakkana í Grindavík alla vega næstu tvö ár áður en hægt er að byrja á framkvæmdum og uppbyggingu, og hvað tekur það langan tíma? Mér finnst vanta svör við þessu og útskýringar til að byggja á þegar við erum að taka ákvarðanir eins og er verið að gera með þessum og öðrum lögum.