breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Hv. þingmaður snertir á viðfangsefni sem er viðkvæmt. Það má vel vera rétt að stundum og oft eigum við líka að horfa á svörtustu sviðsmyndir, og kannski er það gert. En það eru þá kannski lausnir og upplýsingar sem eiga heima einhvers staðar inni á vinnustöðum, í stofnunum eða annars staðar þar sem hægt er að nýta þær en eiga kannski ekki erindi í almannaumræðu. Ég tel a.m.k. eins og málum er háttað núna að það sé hvorki rétt eða tímabært af okkur hér að gefa það í skyn að heill bær verði sleginn af þvert gegn vilja fólks. Ég átta mig þó á því hvað hv. þingmaður er að tala um og þetta er nú gert yfirleitt í allri svona framtíðarvinnu, hönnunarvinnu og öðru slíku. Þá eru búin til dæmi sem munu ekki endilega raungerast. Ég held hins vegar að skipti máli fyrir okkur að nýta þessar myndir sem kunna að raungerast, bæði þær bjartari og svartari, til þess að máta þær við allar þessar aðgerðir sem við höfum verið að ráðast í. Það er auðvitað ekkert leyndarmál að ástæðan fyrir því að það tókst að ráðast nokkuð hratt í þessar aðgerðir í mars 2021 var sú að notaðar voru að einhverju leyti lausnir sem voru búnar til í Covid. Það má svo sem alveg hrósa fólki fyrir það fara ekki að finna upp hjólið heldur nýta það sem gott var þar. Við þurfum hins vegar að þróa þær áfram og sumar eiga kannski meira heima í almennu reglu- og lagaumhverfi.