breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Forseti. Það er einmitt út af reynslunni af Covid sem ég minnist á þetta. Viðbrögð stjórnvalda voru rosalega mikið þau að vonast til að nú verði síðasta bylgjan, sérstaklega í fyrstu bylgjunni þegar vonast var til þess að það væri eina bylgjan. Í rauninni gerðist þetta líka um síðustu áramót eða þar um bil þegar hitaveitan fór. Í svörtustu sviðsmyndum var gert ráð fyrir því að hitaveitan, rafmagnið og ýmislegt svoleiðis myndi fara. Þá var lagt upp með plan um hvað þyrfti að vera til staðar til að bregðast við, sem var ekki tekin ákvörðun um að gera. Þar af leiðandi varð skortur á heitu vatni og þurfti stjarnfræðilega hugmyndaauðgi fólks sem lagði veg yfir nýrunnið hraun til að redda því á skemmri tíma en búist var við að hægt væri. Þannig erum við alltaf að bregðast við eftir á ef við hugsum ekki um það hvernig við gerum hlutina ef þetta fer ekki eins vel og við vonumst til.