154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:52]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta er alveg flókið. Maður hefur líka heyrt raddir héðan úr þessum stól og víðar um að við hefðum átt að gera þetta eða hitt fyrst en auðvitað felst líka töluvert ábyrgðarleysi í því að ráðast í aðgerðir sem er svo ekki þörf á. Ég held þó að það skipti máli að við höfum sviðsmyndina klára.

Af því að hv. þingmaður kemur inn á Covid og viðbrögð stjórnvalda núna þá ætla ég að gagnrýna ríkisstjórnina aðeins. Það lá fyrir í Covid að stjórnarandstaðan var alveg til í að vinna af fullum heilindum með ríkisstjórninni. Það var ekki boðið upp á þetta núna. Ríkisstjórnin ætlaði að nýta sér tækifærið sem fólst í því að vera hinn bjargandi riddari. Hún hefði strax í upphafi þessarar goshrinu átt að búa til þennan stóra samráðshóp sem var t.d. stofnaður daginn eftir að Heimaey byrjaði að gjósa. Það hefur verið svona pólitískt samráð í nefnd, sem er gott, en það hefði verið hægt að gera það með formlegri hætti og gefa þeirri nefnd stærra og meira valdsvið.