154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:54]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir tölu hans. Mig langar aðeins að halda áfram þar sem hann var að velta fyrir sér þeim aðgerðum sem hrundið hefur verið af stað, að þær hafi að forminu til verið nokkuð almennar en það hefði komið í ljós að ákveðnir hópar hefðu ekki fengið úrlausn sinna mála. Það liggur alveg fyrir og lá reyndar fyrir í mínum huga strax þegar farið var af stað að þær aðgerðir sem gripið var til næðu ekki utan um alla, en gott og vel. Hv. þingmaður nefnir íbúðarhúsnæði í eigu lögaðila og hvort réttlætanlegt sé að kaupa upp húsnæði fyrirtækja. Maður getur svo sem fabúlerað um þetta fram og til baka. Í raun og veru getur enginn gert kröfu um eitt eða neitt. Grindvíkingar gátu ekki gert kröfu um það að ríkið myndi stökkva inn í þeirra mál, kaupa upp húsnæði og hjálpa þeim að færa sig um set og staðsetja sig á öðrum stað, en samfélagsleg ábyrgð okkar var þannig að við vildum taka utan um þann hóp sem var að verða fyrir skaða. Þó liggur alveg fyrir að við erum ekki búin að ná utan um alla sem hafa orðið fyrir skaða og þá spyr maður: Má þessi Grindvíkingur fá bætt sitt tjón en annar Grindvíkingur ekki? Hvar er jafnræðið í því nú þegar talað er um að standa með öllum Grindvíkingum? Getum við dregið eitthvert strik í sandinn eins og hv. þingmanni var tíðrætt um og sagt: Þú ert fyrir innan strikið en þú ert fyrir utan það?