breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Jú, það er augljóst að við verðum að draga einhvers staðar línu í sandinn. Það getur hins vegar verið að sú lína sé þannig að við ætlum bara að bjarga öllum, algjörlega. En síðan, eins og ríkisstjórnin hefur lagt þetta upp, á ekki að koma til móts við aðra hópa og það er það sem ég er að gagnrýna. Ég tel í rauninni að það þurfi að útskýra það mjög vel að það komi ekki til greina í einhverjum tilfellum að kaupa upp atvinnuhúsnæði eða íbúðarhúsnæði þar sem enginn hefur lögheimili. Við verðum að muna að fyrirtæki eru svo ótrúlega margs konar. Ég starfaði sem arkitekt í 20 ár áður en ég byrjaði hérna og það er tiltölulega einföld „óperasjón“. Þar eru tölvur, stólar og borð sem hægt er að færa hvert sem er, hægt er að vinna hvar sem er og því um líkt og kannski minni þörf á því að binda mikla peninga í húsnæði. En svo eru aðrar atvinnugreinar sem eru algerlega háðar húsnæði, mjög dýru húsnæði. Þetta geta verið stór trésmíðafyrirtæki og annað slíkt sem krefjast umfangsmikils búnaðar, svo ég tali nú ekki um sjávarútvegsfyrirtæki og þannig lagað. Þetta verður ekki flutt burtu þannig að augljóslega er þetta ónýtt ef þetta verður ekki notað til frambúðar. Ef búið er að greiða fyrir aðgerðir sem hvetja fólk til að koma sér burt úr bænum og taka vinnuaflið og kúnnana í burtu þá hlýtur sami aðili, sem eru stjórnvöld, að íhuga mjög alvarlega hvort það sé ekki líka réttlæti að greiða fyrir þetta tjón. Við getum ekki útilokað það. Eins og ég sagði áðan þá finnst mér ekki ganga að ríkisstjórnin afgreiði þetta svona: Við ætlum að draga línuna hérna, við ætlum ekki að gera þetta — án þess að umræða um það eigi sér stað í þingsal.