154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:58]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar hans. Ég vil lýsa ánægju minni með að hv. þingmaður sé að velta hlutum fyrir sér á þennan veg af því að mér finnst einhvern veginn eins og margir sitji uppi með sárt ennið og eigi mjög erfitt. Til að flækja þessa hluti ekki allt of mikið þá velti ég fyrir mér: Sér hv. þingmaður t.d. fyrir sér einhverja breytingu á Þórkötlu, að skilyrðunum fyrir uppkaupum í Þórkötlu yrði breytt á þann veg að þar kæmu t.d. inn lögaðilar sem ættu íbúðarhúsnæði eða að heimilisfesti yrði breytt þannig að það gilti ekki bara að þú ættir heima í húsnæðinu? Sér hann fyrir sér uppkaup á húsnæði lítilla fyrirtækja í Grindavík? Af því að við erum búin að stofna Þórkötlu, gætum við ekki bara séð fyrir okkur að Þórkatla gæti séð um slík uppkaup í framhaldinu? Hv. þingmaður nefndi hér (Forseti hringir.) að þetta er ekki kostnaður, þetta fer inn á efnahagsreikning og verður svo afskrifað á einhverjum tíma, eða ekki.