154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[15:00]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég held það hljóti að vera að á einhverjum tímapunkti reyni menn að velta því fyrir sér hvort Þórkatla getur þróast á einhvern hátt sem nær utan um fleiri hluti. Eins og ég nefndi áðan þá þarf að halda hlutum við, halda eignum sveitarfélagsins við og ýmislegt annað. Fyrirtækjaeignir væru alveg örugglega ein hugmynd þar. Gefum okkur nú að kostnaður við þessi úrræði sem falla til sé um 100 milljarðar — ég veit ekki nákvæmlega hver hann er en segjum að hann sé 100 milljarðar. Við erum búin að ná utan um svona 80–90% en svo förum við að sjá þá sem falla milli skips og bryggju. Ætlum við að láta þá eiga sig fyrir einhverja 6–8 milljarða? Hvers konar hugsun er það? Ég held að við hljótum að þurfa að skoða með hvaða hætti við getum mætt öllu þessu fólki. Það kann að vera að til séu dæmi þar sem við eigum að segja nei, en ég held að almennt verðum við að reyna að nálgast þetta þannig að fólk beri ekki skarðan hlut frá borði meira en orðið hefur.