breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Við ræðum hérna frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um framhaldsstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík, gott mál en gæti vissulega verið betra. Allt má bæta og við skulum bara vona heitt og innilega að það verði. Frumvarp þetta fjallar um framlengingu og eflingu nánar tiltekinna stuðningsúrræða til bæði íbúa og fyrirtækja í Grindavík. Eins og segir í greinargerð frumvarpsins má rekja tildrög málsins til starfshóps sem forsætisráðherra skipaði þann 19. febrúar. Eins og fram kemur var verkefni hópsins að kortleggja atvinnulífið, aðgengi að Grindavík og þá valkosti sem eru í boði varðandi áframhaldandi rekstur fyrirtækja í bænum.
Allt frá því að jarðhræringarnar hófust í nóvember síðastliðnum hafa Grindvíkingar lifað í mikilli óvissu um framtíð sína. Átta sinnum hefur gosið á Reykjanesskaga síðan árið 2021 og í raun er atburðarás jarðhræringanna lengri, en jarðskjálftavirknin gerði fyrst vart við sig í árslok 2019. Það má með sanni segja að atburðarásin hafi stigmagnast þann 10. nóvember þegar miklir jarðskjálftar riðu yfir og ákveðið var að rýma bæinn. Frá þeim tíma hefur gosið reglulega og hraun runnið nálægt Grindavík og jafnvel inn í bæinn sjálfan. Öll erum við sammála um það að styðja við Grindvíkinga í gegnum þetta erfiða tímabil og þegar hafa stjórnvöld gripið til ýmissa stuðningsráða þeim til handa.
Í þessu samhengi vil ég rifja upp að rétt um tvítugt eða rúmlega tvítugur kaupi ég mína fyrstu íbúð í Grindavík, líka íbúð nr. 2. Ef ég fer að hugsa aftur í tímann þá er það akkúrat þarna á aðalsvæðinu, Túngötusvæðinu, sem fyrsta íbúðin sem ég kaupi þarna var og aldrei gat maður ímyndað sér að svona hamfarir gætu átt sér stað. Ég kom nú inn í Grindavík mun fyrr, ég kom sem krakki eða unglingur í Grindavík til að aðstoða frænda minn. Hann var á sendiferðabíl að keyra vörur í verslanir og síðan kom ég þarna að sumri til, vann í fiski og spilaði fótbolta með unglingaliði Grindavíkur og svo einnig seinna meir að sumri til í sjómennsku, fór á sjóinn. Síðan var ég þarna í ein sjö ár, fyrst lögreglumaður í Grindavík og síðan í Keflavík. Þess vegna er hugur manns hjá Grindvíkingum og ég á ættingja og vini þar og ég segi að það er eiginlega með ólíkindum það sem fólk hefur þurft að ganga í gegnum, ég tala nú ekki um þá sem eru viðkvæmir fyrir og sérstaklega fatlað fólk og eldri borgarar sem eru komnir á lokaár ævi sinnar og voru komnir á elliheimili og annað. Þetta er miklu meira en að segja það og mikið álag, ekki nóg bara álag á fjölskyldur með börn heldur álag á fjölskyldur um hvar húsnæðið er, hvar vinnan er, hvar skólinn er og hvernig þær eiga að hugsa um ættingja sína. Þetta er alveg gífurlegt vandamál og einhvern veginn finnst mér að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið alveg nógu markvissar vegna þess að það er eins og þeir hafi alltaf beðið eftir því að þetta myndi hætta í staðinn fyrir að spýta í lófana og horfa á þetta þannig að þetta sé bara verkefni sem þurfi að leysa hvort sem þetta stendur stutt yfir eða langt yfir og sjá til þess sérstaklega að enginn falli milli skips og bryggju og allra síst að verið sé að mismuna af einhverjum ástæðum, vegna þess að það er eiginlega ömurlegt til þess að vita að við skulum vera með svoleiðis kerfi.
Að vísu hafa stuðningsaðgerðirnar ekki náð tilskildum árangri í öllum tilvikum. Það kom t.d. mörgum Grindvíkingum í opna skjöldu hve langan tíma það hefur tekið að greiða fyrir fasteignir sem félagið Þórkatla keypti. Þá eru dæmi um fólk sem féll milli skips og bryggju, eins og ég sagði áðan, ef svo má að orði komast, og fékk því ekki fasteignina sína keypta af félaginu Þórkötlu. Þá hafa fyrirtæki í Grindavík upplifað mikla óvissu enda hefur ekki verið ákveðið að kaupa upp atvinnuhúsnæði líkt og gert var í tilvikum einstaklinga. Þá er útlit fyrir að hin ýmsu stuðningsúrræði muni brátt renna sitt skeið lögum samkvæmt. Þar sem jarðhræringarnar eru enn í gangi og enn er eldgos í gangi sem hófst í síðustu viku eru það eðlileg viðbrögð stjórnvalda að framlengja viðeigandi stuðningsúrræði og er um það fjallað í frumvarpinu sem við ræðum hér og nú.
Eins og segir í frumvarpinu er lagt til að framlengja þrjú stuðningsúrræði; rekstrarstuðning til fyrirtækja í Grindavík, sérstakan húsnæðisstuðning til Grindvíkinga og tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfaranna. Lagt er til að rekstrarstuðningurinn verði framlengdur þannig að í stað þess að hann falli úr gildi í lok þessa mánaðar gildi hann út árið 2024. Lög um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ voru samþykkt í lok febrúar 2024. Rekstrarstuðningnum er ætlað að stuðla að því að rekstraraðilar sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna náttúruhamfaranna í Grindavíkurbæ geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi, varðveitt viðskiptasambönd og hafið starfsemi á ný með stuttum fyrirvara. Þessi lög gáfu rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir a.m.k. 40% tekjufalli samanborið við sama almanaksmánuð árið áður kost á að sækja um beina styrki úr ríkissjóði með nánari skilyrðum um hámarksstyrktarfjárhæðir. Eins og fram kemur í þeim lögum var gildistími úrræðisins frá upphafi jarðhræringanna í nóvember 2023 og út júní 2024.
Lagt er til að sérstaki húsnæðisstuðningurinn verði einnig framlengdur út árið 2024 en hann hefði áður að óbreyttu fallið niður þann 31. ágúst næstkomandi. Lög um sérstakan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfaranna í Grindavíkurbæ voru samþykkt í desember 2023. Eins og nafnið gefur til kynna er markmið þeirra laga að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga að ákveðnum skilyrðum uppfylltum um lögheimili eða tímabundið aðsetur í Grindavík þann 10. nóvember. Lögin náðu upphaflega til húsnæðiskostnaðar sem féll til vegna leigu á húsnæði til 29. febrúar 2024 en sá tími hefur þegar verið framlengdur til 31. ágúst 2024. Nú er lagt til að húsnæðisstuðningurinn framlengist út árið 2024.
Þá er loks lagt til að stuðningur við greiðslu launa verði framlengdur um tvo mánuði, til ágústloka, en hefði að óbreyttu fallið niður í lok júní. Lög um tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfaranna í Grindavíkurbæ voru samþykkt á Alþingi í lok nóvember 2023. Það er vissulega fagnaðarefni að með frumvarpi þessu er verið að framlengja tímabilið til stuðnings til greiðslu launa vegna náttúruhamfaranna í ljósi þeirrar óvissu sem enn ríkir vegna áframhaldandi jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga svo að atvinnurekendum og launafólki gefist frekara svigrúm til að bregðast við þeim aðstæðum sem uppi eru. Það er þó varhugavert að ekki séu áform um að framlengja umrædd tímabil umfram þann tíma sem gert er ráð fyrir í frumvarpi þessu, enda er ekki ljóst hvenær jarðhræringunum lýkur endanlega.
Þá eru í þessu frumvarpi gerðar þrjár efnisbreytingar á hinum sértæka rekstrarstuðningi. Lagt er til að lágmarkstekjufallsviðmið lækki úr 40% í 20% þannig að fleiri aðilar geti átt rétt á slíkum stuðningi enda sýna þeir fram á a.m.k. 20% tekjufall. Þá er lögð til sú efnisbreyting á úrræðinu um tímabundinn stuðning til rekstraraðila að heimilt verði vegna tímabilsins frá og með 1. júlí 2024 til og með desember sama ár að miða útreikning á styrktarfjárhæð við þann fjölda stöðugilda sem voru hjá rekstraraðilanum við upphaf jarðhræringanna í nóvember 2023. Óbreytt er þó að hámarksviðmið fyrir fjölda stöðugilda verður tíu. Loks er lagt til að þau fyrirtæki sem verða fyrir 50% tekjufalli eða meira skuli fá hámarksstyrk.
Það er gott að þingið fái loksins til umfjöllunar frumvarp sem á að taka á vanda fyrirtækja í Grindavík sem og Grindvíkinga almennt, enda hafa Grindvíkingar kallað eftir framlengingu og eflingu á þessu úrræði. Þó verða áfram einstaklingar og fyrirtæki í Grindavík sem ekki fá úrlausn sinna mála. Sem dæmi um það má nefna nýsköpunarfyrirtæki í Grindavík sem framleiðir sæeyru. Fyrirtækið hefur orðið fyrir miklu tjóni vegna rafmagnsleysis og skorts á heitu vatni en þar sem um er að ræða nýsköpunarfyrirtæki sem ræktar vöru sem tekur mörg ár að koma á markað getur fyrirtækið ekki sýnt fram á tekjutap og mun því ekki fá greiddan rekstrarstuðning. Eins og fram kemur í greinargerð þessa frumvarps hafa hingað til aðeins 27 fyrirtæki sótt um rekstrarstuðning og er það e.t.v. til marks um að skilyrði fyrir styrkveitingu kunni að vera allt of þröng.
Þá eru dæmi um að einstaklingar falli milli skips og bryggju. Ég get sem dæmi nefnt einstakling sem bjó á heimili þar sem voru skráð tvö fasteignanúmer. Viðkomandi bjó þá í húsi sem einhvern tíma var skipt í tvær íbúðir en nýtti allt húsið til eigin búsetu. Vegna skráningarmála hafði hún aðeins lögheimili í öðru fasteignanúmerinu en vegna þessa gat hún aðeins fengið að selja hluta hússins til fasteignafélagsins Þórkötlu. Hugsið ykkur, þvílíkt rugl. Þá hafa Grindvíkingar orðið fyrir bæði fjárhagslegu og ekki síður tilfinningalegu tjóni vegna óvissunnar um með hvaða hætti stjórnvöld muni styðja við þá. Dæmi eru um fjölskyldur á hrakhólum sem hafa þurft að flytja búferlum margoft vegna þess að tímabundnir leigusamningar renna út. Leigumarkaðurinn er þegar í spennitreyju vegna framboðsskorts á húsnæði og því þurfa margir að greiða okurleigu fyrir óhentugt húsnæði. Ég vona svo sannarlega að jarðhræringarnar og eldsumbrotin taki brátt enda en við þurfum að vera raunsæ. Við getum ekki reitt okkur á góðvild náttúrunnar. Náttúran skeytir engu um okkar óskir.
Við verðum að sýna Grindvíkingum áheyrn, grípa til aðgerða vegna ábendinga þeirra um úrræði sem ekki hafa náð tilskildu markmiði og ganga til verks hratt og örugglega en númer eitt, tvö og þrjú ber okkur skylda til þess að sjá til þess að þeim einstaklingum sem verst standa í samfélaginu í Grindavík, fólki sem reiðir sig algjörlega á hjálp samfélagsins sé sinnt og sé hjálpað. Það var alveg með ólíkindum þegar maður horfði á fyrir ekki svo löngu síðan viðtal við aldraðan einstakling sem var að missa aðstöðu sína sem var ekki einu sinni honum boðleg heldur bara herbergi, herbergisaðstaða með aðgangi að eldhúsi. Eina úrræðið sem hann sá fram á var að flytja aftur í sitt eigið húsnæði í Grindavík. Ég hugsaði með mér að það væri alveg með ólíkindum ef mönnum sem hafa byggt upp okkar þjóðfélag, eldri borgurunum okkar, er ekki sýnd meiri virðing en það að það er eins og þeir gleymist alltaf. Við verðum vör við það hérna á þinginu því miður, það er sorgleg staðreynd að í nærri sjö ár hafa eldri borgarar sem lifa á lífeyrislaunum almannatrygginga ekki fengið krónu umfram lögbundna útreikninga þessarar ríkisstjórnar um það hvað þeir eigi að fá en ekki eins og lögin segja að þeir skuli fá að lágmarki samkvæmt launavísitölu. En það er því miður aldrei farið eftir því og þess vegna er svo sorglegt til þess að vita að við skulum vera með þá staðreynd að það séu eldri borgarar þarna úti sem eru enn í gjörsamlega óíbúðarhæfu húsnæði, ekki einu sinni húsnæði, kannski í hjólhýsi eða í herbergi inni á börnum sínum eða ættingjum. Það er óásættanlegt og ríkisstjórninni ber að einbeita sér að þessum einstaklingum, eldri borgurum, fötluðum einstaklingum, þeim sem þurfa virkilega hjálp, að sjá til þess að hjálpa þeim strax. Það er forgangsverkefni vegna þess að það er skylda okkar að hjálpa þeim sem geta ekki hjálpað sér sjálfir.