breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langar að taka aðeins upp umræðu um það að hér er verið að framlengja úrræði en í rauninni ekki verið að stoppa í götin. Eitt af því sem við sem vorum í samráðshóp um Grindavík ræddum mikið við ríkisstjórnina var að þetta yrði að vera fyrsta skrefið, þar sem verið væri að taka almennt á hlutunum, en síðan yrðum við að taka á þeim einstaklingum og því fólki sem dytti á milli og lenti í götunum. Til að byrja með þegar við vorum í þessum samráðshóp fannst mér vera hlustað aðeins á okkar athugasemdir og reynt að koma til móts við þær. En svo þegar þetta var kynnt, t.d. húsnæðislausnin, og við fórum að fá athugasemdir um fólk sem var að falla á milli þá var svarið sem ég fékk frá fulltrúa ráðuneytisins við spurningum um hvort ekki ætti að tækla ákveðin atriði, með leyfi forseta: „Það sem margt af þessu fólki virðist vanta er sálfræðiaðstoð.“ Síðan þá hafa ekki verið gerðar neinar breytingar. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er ekki mikilvægt að við tökum á þessum einstaka málum sem átti og okkur var sagt að ætti að finna leiðir til að taka á, en skýlum okkur ekki bara á bak við það að við séum búin að bjarga 80% af fólkinu?