breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni andsvarið. Ég verð bara að segja alveg eins og er: Hver er besta sálfræðiaðstoðin í þessu samhengi? Að láta fólkið ekki detta á milli skips og bryggju. Það er ekki flókið og segir sig sjálft. Ég get ekki annað en ítrekað, eins og hefur komið fram í andsvörum við hv. þm. Loga Einarsson, að húsnæði er heimili. Ef einhver bjó í viðkomandi húsnæði þá er það heimili. Og að segja: Bíddu, af því að þú ert þarna — þeir hefðu alveg eins getað sagt: Þeir sem eru örvhentir fá ekki og þeir sem eru rauðhærðir fá ekki. Af hverju á að hólfa þetta svona niður? Húsnæði er bara húsnæði og nú ætti að bjarga öllum sem kaupa sér húsnæði sem er íbúðarhúsnæði. Það er ekkert flókið mál. Það segir sig sjálft að ekkert af þessu íbúðarhúsnæði hefur byggt sig sjálft. Það hefur þurft að borga fyrir það eða byggja það sjálft. Fyrir mitt leyti þá hef hitt fullt af fólki frá Grindavík og dáist að því hversu ótrúlega seiglu það hefur sýnt. Ég næ því ekki og get ekki hugsað þá hugsun til enda að ef þú ferð inn í bæ þar sem þú ert fæddur og ætlar að byggja einbýlishús, leggur blóð, svita og tár í það, að vegna þess að kannski þurftir þú að fá aðstoð frá ættingjum, foreldrum eða eitthvað og ert ekki skráður með heimilisfangið í því húsi sem þú ert búinn að leggja blóð, svita og tár í, þá eigir þú ekki að fá það greitt. Það gengur aldrei upp. Besta sálfræðiaðstoðin er að sjá til þess að þeir sem eiga á hættu að falla á milli skips og bryggju falli ekki.