154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[15:21]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar. Það er þetta með sálfræðiaðstoðina. Það er vel þekkt að fjárhagsáhyggjur eru eitt af því sem orsakar hvað mestu erfiðleikana, t.d. fyrir fólk í samböndum. Flest sambönd sem slitna eru vegna umræðu um fjármál og annað. Ég er alveg sammála því að það fólk sem er að fara í gegnum þessa skelfilegu krísu þurfi líka sálfræðiaðstoð. Við höfum ekki talað eins mikið um það í þessum sal að við þurfum að taka utan um fólkið og veita því aðstoð, ekki bara fjárhagsaðstoð heldur sálfræðiaðstoð. Við þurfum að hjálpa því við að halda í samfélagið, halda í alla þessa hluti. Við höfum ekki haft mikla umræðu um það innan þessara veggja hvernig við getum tekið utan um fólkið. Já, tryggjum peningana, tryggjum það að við hjálpum fólki að byggja upp nýtt líf annars staðar. Við sjáum að það er komið upp í 800 hús eða íbúðir sem fólk hefur beðið um að Þórkatla kaupi. Þetta er stór hluti af húsnæðinu sem ég held að telji 930 eða eitthvað svoleiðis ef dregið er frá það sem ekki fellur undir leiguhúsnæði, atvinnuhúsnæði og það allt saman. Næstum því allur bærinn er búinn að óska eftir þessu. Það eru einhverjir sem falla þarna á milli, en þurfum við ekki líka að taka utan um fólkið og tryggja því aðgang að sálfræðiþjónustu, byggja upp samfélagið, byggja upp tengsl og allt sem það þýðir að vera hluti af því samfélagi sem Grindavík er?