154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[15:24]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, við þurfum svo sannarlega á því að halda en því miður er staðan sú að heilbrigðiskerfið okkar er ekki upp á marga fiska. Einhvern tíma var sagt að það væri fiskur undir steini í Grindavík en ég held að það séu ekki margir fiskar undir steini í heilbrigðiskerfinu. Ég þekki helling af fólki þarna, á marga ættingja og vini og bjó sjálfur í Grindavík. Fólk fór að hafa samband við mig. Maður skildi fyrst baráttuviljann í fólkinu en svo skildi maður ekki hvernig í ósköpunum það gæti staðið undir því álagi sem sett var á það. Einstaklingur var kannski búandi fyrir austan fjall. Sá einstaklingur átti tvö börn, annað barnið fór í leikskóla í Laugardalnum, hitt barnið fór í skóla í Hafnarfirði og síðan fór viðkomandi einstaklingur til vinnu á Keflavíkurvelli. Þetta var rútínan yfir daginn. Á sama tíma var fólk með áhyggjur af húsnæðinu sínu. Það fór úr einbýlishúsi og var komið niður í einhvern lítinn sumarbústað eða smáíbúð. Síðan kom Þórkatla og þá kom bjartsýnin og krafturinn; mögulega fengi fólk borgað. Það fékk bréf um að allt væri komið í ferli og sagt var að þetta tæki þrjár, fjórar vikur. Síðan liðu tveir mánuðir og þrír mánuðir. Þá fyrst fór fólk að verða skelfingu lostið. Þá fyrst fór vonleysið að tikka inn. Eiginlega það versta sem hægt var að gera fólki var að draga það liggur við á asnaeyrunum. Það var dregið allt of lengi að finna úrræði. Það á að spýta í lófana og gera hlutina einn, tveir og þrír.