154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[15:26]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður fór ágætlega yfir það út á hvað þetta frumvarp gengur. Þar eru rekstrarstyrkir til fyrirtækja, húsnæðisstyrkur og launagreiðslur. Allt er þetta mikilvægt. En hv. þingmaður nefndi líka fólkið sjálft. Hann talaði um eldra fólk og mikilvægi þess að fjárfesta líka í fólkinu. Auðvitað er mikilvægt að sjá til þess að einhver atvinnustarfsemi geti verið í Grindavík ef það á að byggja samfélagið upp að nýju en það verður ekkert samfélag ef fólk býr ekki í bænum, ef það eru engin börn í bænum, ef engin þjónusta er við fólk í bænum. Það er ekki síður mikilvægt að fjárfesta í fólkinu, ég veit ekki hvernig hægt er að orða það öðruvísi. Það má vera að minna sé talað um það vegna þess að þar undir eru erfið mál. Við heyrðum og sáum það hér þegar Grindvíkingar voru að kalla eftir hraðari afgreiðslu hjá Þórkötlu þegar félagið var að fara í gang — þau mættu hér á Austurvöll og komu upp á þingpalla — að mikil ólga var meðal íbúanna og reiði. Þá vorum við svolítið minnt á það hér í þessum þingsal að við vorum ekki að standa okkur og höfum ekki verið að standa okkur. Auðvitað er búið að gera margt en það hefði þurft að stíga fyrr til jarðar og við hefðum átt að láta verkin tala. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála því að ef við viljum standa undir merkjum sem almennilegt samfélag þurfum við að taka betur utan um Grindvíkinga, sem eru fórnarlömb náttúruhamfara og gátu ekkert gert við því.