breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir andsvar hennar. Ég er innilega sammála henni vegna þess að ég skynja það líka að komið var að ákveðnum punkti. Fólk var að leigja, hafði leigusamning til ákveðins tíma og vissi að þegar tími leigusamningsins rynni út fengi það hann ekki framlengdan. Síðan var þetta sama fólk búið að tryggja sér íbúð og gera tilboð og var að stíla inn á það að áður en leigusamningurinn rynni út væri það búið að fá borgað frá Þórkötlu og myndi sleppa inn. Þegar þetta var alveg að skella á þá kom örvæntingin. Maður sá það á fólkinu að þá var mælirinn fullur. Það var búið að leggja allt undir og gera allt sem það gat. Maður getur ímyndað sér það. Fyrst þurfti það að flýja bæinn, síðan að finna aðstöðu fyrir krakkana í leikskóla og skóla, koma öllu í rútínu, reyna að halda vinnu, var með vinnu fyrir utan Grindavíkurbæ, og svo eru það hinir sem misstu vinnuna í bænum. Þetta er svo skelfileg staða, en að lenda síðan í því að vera ítrekað lofað einhverju, t.d. með Þórkötlu, og ná ekki sambandi. Ég heyrði af fólki sem reyndi að ná sambandi við Þórkötlu. Það reyndi og reyndi og meira að segja barnið þeirra sagði: Er þessi Þórkatla nokkuð til? Því blöskraði svo að ekki væri hægt að ná í neinn. Ég fór að hugsa þetta og velta þessu fyrir mér. Þá kom hv. þm. Eyjólfur Ármannsson úr Flokki fólksins. Hann var búinn að reyna að ná í þá sem stjórna Þórkötlu og náði ekki í þá í síma. Ég hugsaði með mér: Hvað í ósköpunum; hvílík örvænting það er þegar fólk er hunsað svona. Ég held að það hafi verið það versta, samráðsleysið og að hunsa fólk. Það á ekki að eiga sér stað í svona hamförum.