breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Ég get tekið undir þetta með hv. þingmanni. Ég las það í Víkurfréttum í morgun að búið er að opna þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga í Borgartúni 33, ef ég man rétt, í Reykjavík. Hægt er að fá upplýsingar á island.is um hvernig þjónustumiðstöðin starfar. Sjálfsagt hafa einhverjir sérfræðingar fundið út að það væri sniðugt að hafa þjónustumiðstöðina í Reykjavík og ég vona að þeir sem þurfa á þjónustunni að halda en eru ekki með bíl eða hafa ekki tækifæri til að ferðast eða getu, geti haft samband með síma eða með rafrænum hætti. Einhvern veginn hefði mér fundist að þessi þjónustumiðstöð ætti að vera á Suðurnesjum þar sem langflestir Grindvíkingar eru að koma sér fyrir. Þó að þær séu auðvitað meira og minna dreifðar úti um allt land hafa mjög margar fjölskyldur sótt í nágrannasveitarfélög, sem eðlilegt er.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann geti ekki tekið undir það sem fram kom t.d. hjá hv. þm. Loga Einarssyni hér fyrr í þessari umræðu, að ef ekki á að taka á jaðartilfellunum eins og lofað var — okkur var lofað því að fyrst færi Þórkatla í gang og þar yrði kúfurinn tekinn með almennum hætti og síðan yrðu jaðartilfellin skoðuð, lögaðilarnir, þar sem sumir eru bæði með heimili og fyrirtæki einhvern veginn í samkrulli þar sem allt er undir. Þetta fólk er enn að bíða eftir lausnum. Er hv. þingmaður ekki sammála því að stjórnvöld þurfi að koma hingað, t.d. í þessari umræðu, og segja það beint út ef þau ætla ekki að taka á jaðartilfellum, ef þeim finnst þau hafa gert nóg og ætla að skilja hina eftir sem ekki hafa fengið lausn á sínum málum?