breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Ég er alveg innilega sammála. Ef við hugsum aðeins aftur í tímann þá man ég að ég varð eiginlega kjaftstopp og hugsaði með mér að þeir hlytu að vera að djóka þegar þeir settu upp miðstöð í gamla Tollhúsinu, á versta stað í Reykjavík sem hægt er að komast að þar sem eru dýrustu bílastæði landsins, ef þú færð á annað borð stæði. Ég heyrði af einum Grindvíkingi sem reyndi að fara í bílakjallarann og lenti í þvílíku veseni. Þetta var svo absúrd og ekki er Borgartúnið betra. Vogarnir, Njarðvík, Keflavík, Garður, Sandgerði; allt betra. Ég er alveg viss um að Grindvíkingar væru sammála mér vegna þess að þú finnur miklu fleiri Grindvíkinga á þessu svæði sem væru tilbúnir að koma heldur en hér. Ég veit líka að þeir eru farnir að hittast á ákveðnum stöðum í Hafnarfirði. Þetta er alveg óskiljanlegt. Mér finnst að þarna sé verið að gera eitthvað án þess að spyrja Grindvíkinga. Það er lágmarkið að spyrja þá og láta þá segja hvar þeir vilja hafa sína miðstöð og hvar myndi henta þeim best.
Í sambandi við að fyrst ætti að taka málin sem væri auðvelt að leysa og síðan kæmu hin sem væri erfiðara að leysa þá er ég hræddur um, vegna þess að við höfum fengið að heyra að það komi ekki fleiri mál inn í sambandi við Grindavík á þessu vorþingi en þessi tvö, að það yrði í fyrsta lagi næsta haust sem farið yrði í að leysa úr málum þeirra sem falla á milli skips og bryggju. Ég óttast að þá verði þeir bara farnir þangað og verði gleymdir.