breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Það er ánægjulegt að við séum hér að ræða frumvarp sem snertir það að framlengja ýmsar stuðningsaðgerðir vegna náttúruhamfaranna í Grindavík. Mér þykir sérstaklega ánægjulegt að ég veit að það er einhugur um þetta mál en það er samt umræða. Og af hverju er umræða um eitthvert mál sem er einhugur um? Jú, það er vegna þess að við viljum tryggja að raddir Grindvíkinga sem falla utan við þessar stuðningsaðgerðir heyrist. Það er ótrúlega mikilvægt að þær fái að heyrast vegna þess að eins og kom fram hér rétt áðan hjá hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni þá er það þannig að ef við gerum ekki eitthvað fyrir það fólk sem fellur á milli í þessum aðgerðum þá gerist ekkert fyrr en í haust. Þá erum við að fara að láta fullt af fólki bíða með lausn á sínum málum þangað til einhvern tímann í haust eða vetur.
Það er því miður þannig að við eigum engin almenn lög þegar kemur að því hvernig við bregðumst við krísum eins og því sem er að gerast í Grindavík eða sem gerðist í Covid-faraldrinum. Það er alveg spurning, vegna þess að við höfum heyrt það hér áður að við erum að nota mikið til rammann frá því í Covid, hvort við getum ekki nýtt þann ramma, þá reynslu sem kom af því og þá reynslu sem kemur af Grindavík til að búa til almenn lög um það hvernig við bregðumst við þegar svona gerist, því það er nefnilega þannig að þegar krísurnar eiga sér stað þá stöndum við saman sem ein þjóð.
Eins og ég sagði áðan er okkar helsta markmið í þessum umræðum að tryggja það að rödd þeirra sem falla á milli í þessum stuðningi heyrist. Við höfum rætt heilmikið hér í undanförnum ræðum um húsnæðiskaupin, um Þórkötlu og hvernig hún tekur ekki á hinum ýmsu mismunandi búsetuformum, getum við sagt, hvort þú ert með lögheimili hér, lögheimili þar, hvort lögheimilið er á hálfu fasteignanúmeri eða heilu, alls konar svona. Þessu var okkur sagt að yrði tekið á, þessu yrði reddað. En því miður erum við ekki að sjá það gerast. Það er líka þannig að í Grindavík voru þónokkur leigufélög, sum hver leigufélög sem byggja á óhagnaðardrifnu módeli. Þau eru ekki að fá neitt. Þar af leiðandi hefur það neikvæð áhrif á möguleika þeirra til að byggja húsnæði annars staðar sem er byggt á óhagnaðardrifnum módelum.
Við höfum líka heyrt um fyrirtækin, fyrirtæki sem eru inn á bann- eða hættusvæði, fyrirtæki þar sem fólkið er flutt í burtu, fyrirtæki sem vilja jafnvel flytja úr bænum og byggja upp á nýjum stað en geta það ekki vegna þess að eigið fé þeirra liggur í húsnæði sem þau fá ekki greitt, hvorki af tryggingum né frá ríkinu. Þarna er ekkert gert og eins og margir hv. þingmenn hafa nefnt þá er þetta að hafa áhrif á það að fólk geti byrjað að vinna aftur, fólk geti farið með sín fyrirtæki, þau þeirra alla vega sem auðvelt er að flytja eða ekki ómögulegt, að þau geti flutt annað, t.d. í nærliggjandi sveitarfélög, en það hefur ekki verið áhugi hjá ríkinu, ríkisstjórninni, á að tækla þetta.
Við höfum líka séð ýmislegt annað gerast. Eitt dæmi sem við höfum séð er að fólk hefur verið að koma með t.d. kindurnar aftur inn á svæðið. Af hverju ætli það sé? Jú, vegna þess að ef þú ætlar að flytja þær eitthvert annað, geyma þær einhvers staðar, þá kostar það. Eru viðkomandi bændur að fá borgað fyrir það að geyma féð annars staðar? Nei. Það er kannski þess vegna sem þeir koma alltaf aftur og aftur, með jafn slæmum afleiðingum og það getur haft.
Við erum líka að sjá að módelið sem við erum búin að búa til hér fyrir fyrirtæki er allt byggt á tekjutapi. Það virkaði kannski ágætlega í heimsfaraldrinum þegar við vorum að tala um að ferðamannaiðnaðurinn fékk ekki neinar tekjur. Það virkar kannski ágætlega fyrir einhver veitingahús eða bakarí sem missa tekjur en fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem eru að þróa vöru eins og t.d. fyrirtækið Sæeyru og eflaust fleiri, þá koma engar tekjur fyrstu ár. Þá er ekki hægt að miða við það. Þetta eru fyrirtæki sem eru líka búin að vera að missa sumt af sinni framleiðslu vegna rafmagnsleysis, vegna skorts á vatni og vegna þess að aðgangur hefur verið heftur að svæðinu. Þau falla ekki hérna undir og það er ekkert í þessu frumvarpi sem tæklar þau.
Ég nefndi það líka áðan í andsvari að það þarf að passa upp á fólkið. Við þurfum að taka utan um fólkið. Það þýðir ýmislegt. Það þýðir að tryggja að það hafi eitthvert húsnæði til að búa í sem sé við hæfi. Ég veit um stórar fjölskyldur í 40 m² húsnæði. Það er líka búið að vera þannig að margir hafa getað bjargað sér yfir vetrartímann, t.d. með því að vera í Airbnb-húsnæði en jafnvel þurft að flytja úr því í viku vegna þess að það var búið að leigja það út um páskana. Þetta gengur ekki upp.
Mig langar líka að nefna einn hóp sem var ekki hugsað út í. Það er hópur af eldra fólki úr Grindavík, fólki sem var komið á ellilífeyri, fólk sem hafði unnið alla sína tíð og borgað upp stærstan hlutann af sínu húsnæði, kannski búið að búa í sama húsnæðinu í dálítið langan tíma, fólk sem síðan fer og selur húsnæði sitt til Þórkötlu, en ef það ætlar að fá sambærilegt húsnæði einhvers staðar annars staðar þá duga ekki peningarnir frá Þórkötlu fyrir húsnæðinu á hinum staðnum. Hvað þarf þá að gerast? Jú, það þarf kannski að taka lán. En viti menn, af því að við erum ekki með ellilífeyriskerfi sem borgar tugi milljóna til þín á mánuði þá fær það ekki greiðslumat og endar þar með á leigumarkaði. Hvað gerist þá? Jú, þá hefur það áhrif að þú seldir húsnæðið þitt. Það hefur áhrif á lífeyrinn þinn. Með öðrum orðum, við erum komin í vítahring. Þarna er bara gott dæmi um það að við gleymdum ákveðnum hóp og við þurfum að finna lausnir fyrir þennan ákveðna hóp. Það gerum við ekki með því að setja bara allt í almenna módelið. Það er fólk sem fellur þarna á milli og við þurfum að tryggja að það fólk fái þá aðstoð sem þarf, því að eins og ég sagði í upphafi, þegar kemur að þessum málum, þegar kemur að því að takast á við hamfarir eins og þessar, sem eru alls ekki vegna einhvers sem þetta fólk gerði, þá stöndum við saman. Þegar við segjumst standa saman þá er það ekki bara að við stöndum saman með 80% af Grindvíkingum eða 90%, við þurfum að standa saman með öllum Grindvíkingum. Við þurfum að sýna það í verki að við gerum það sem gera þarf. Þetta er ekki spurning um einhverjar stórar upphæðir, þetta er spurning um einhverja örfáa milljarða sem við sem þjóðfélag getum tekið á okkar herðar til þess að tryggja það að samlandar okkar, þegar þeir lenda í hamförum, séu hluti af þjóðinni, því ég veit það að við myndum sjálf vilja að þannig væri tekið utan um okkur ef sams konar hamfarir hefðu áhrif á okkur.
Að lokum langaði mig að vekja athygli á því, af því að það kom fram í andsvari hér áðan að það væri erfitt að átta sig á því hvernig húsnæði væri metið af Náttúruhamfaratryggingu Íslands, að ég lagði inn fyrirspurn um nákvæmlega það mál fyrr í vor og svarið kom núna í morgun. Þetta er hægt að finna á netinu, á vef Alþingis ef farið er undir mitt nafn og síðan þær fyrirspurnir sem ég hef sent inn. Þar má finna svar við því hvers konar verkferlar og hvers konar aðferðir eru notaðar til að meta húsnæði hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Það er líka sem fylgiskjal við þetta svar gátlisti fyrir matsmenn, það er handbók um tjónamat og innihald matsgerða, verklagsreglur. Allt fylgir þetta með þannig að nú ætti að vera alveg á hreinu fyrir Grindvíkinga sem telja sig ekki hafa fengið gott mat að sjá hvort þessum ferlum hafi verið fylgt. Við erum nokkrir hv. þingmenn sem höfum einnig óskað eftir mun ítarlegri skýrslu um þetta mál og það er von mín að hún komi sem allra fyrst.