154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[15:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér. Hv. þingmaður er að nefna hér dæmi, nöturleg dæmi um einstaka aðila sem eru komnir í bullandi vandamál og neyðast því til að selja og fara, eldri borgara sem komast ekki í gegnum greiðslumat í framhaldinu. Það eru auðvitað grátlegt að svona atriði séu til staðar.

Mig langar líka að nefna að því var haldið á lofti í þingsal að fólk sem þyrfti tímabundið að flytja út úr húsnæði sínu myndi náttúrlega fá sérlausn innan Þórkötlu. En það eru svona dæmi eins og með eldri borgara sem hafa flutt á hjúkrunarheimili, hafa ekki verið búnir að selja og hafa kannski leyft börnum eða barnabörnum að fara í húsnæðið. Þá er viðkomandi einstaklingur ekki með lögheimili í húsnæðinu sínu heldur kominn inn á Víðihlíð og sá einstaklingur myndi ekki samkvæmt skilmálum Þórkötlu fá uppgreiðslu eða heimild til sölu. Ég er bara núna að reyna að fiska eftir: Er þörf á breytingum á skilmálum innan Þórkötlu? Hv. þingmaður nefndi hér að við ætlum ekki að hjálpa bara 80% eða 90% en við erum greinilega með einhver 10–15%, 20%, sem standa utan við þessi úrræði sem við erum nú þegar búin að samþykkja. Er eðlilegt og rétt að við skoðum þá núna hvort við förum í það að breyta skilmálum til uppkaupa innan Þórkötlu til að ná utan um þessa aðila sem hafa svo sannarlega fallið utan garðs?