154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[15:53]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þegar við vorum að vinna þetta frumvarp um Þórkötlu var það þannig að við vorum hópur þingmanna úr öllum flokkum sem fengum að gera okkar athugasemdir við það meðan verið var að búa frumvarpið til. Eitt af því sem var ítrekað sagt af ráðuneytinu var að skilgreiningin á því að vera með lögheimili yrði tekin mjög svona léttvægt, þ.e. að það ætti að passa upp á þessi dæmi sem þú nefndir, þegar fólk er komið kannski inn á hjúkrunarheimili, fólk sem hefur verið í námi erlendis eða eitthvað slíkt, að það ætti að taka tillit til þeirra. Svo virðist það bara vera þannig, og þetta voru atriði sem við vorum búin að vara við, að þessi skilgreining sé tekin allt of nákvæmlega af Þórkötlu. Ég held að það sé alveg mikil nauðsyn á því að fara og skoða þessa ákveðnu grein frumvarpsins, eða grein laganna, sem ég man ekki akkúrat númer hvað er, og laga hana þannig að það séu bara gefin fullt af þessu — nú vitum við öll að eflaust er til einhvers staðar listi yfir öll þessi undantekningartilvik. Við getum bara sett þau inn fyrst að ekki er verið að fylgja þessari útgáfu sem við settum inn þar sem átti að taka léttvægt á þessu. Þá bara gerum við þetta. Þannig getum við lagað lögin og við ættum að laga lögin.