breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Það er margt sem ég myndi vilja ræða við hv. þingmann og hefði viljað að þessi umræða gæti verið lengri um þetta tiltekna mál. En mig langar líka að nefna einstakling sem kom fyrir, held ég, efnahags- og viðskiptanefnd og sem var að byggja. Hann var að byggja fimm raðhús, þetta var svona viðbótarverkefni hjá honum, og búinn að selja fjögur en það var ekkert flutt í þau. Einstaklingarnir sem voru búnir að kaupa húsið óskuðu eftir því að hann myndi taka það til baka af því að þeir myndu aldrei geta nýtt það. Hann átti eitt eftir og þá er sá einstaklingur í þeirri stöðu að þurfa að taka við þessum fjórum og eiga svo eitt til viðbótar, þannig að við getum ímyndað okkur þetta tjón sem er að eiga sér stað hjá slíkum einstaklingi. Hér nefndi hv. þm. Logi Einarsson dæmi um feðga sem voru að byggja hús í Grindavík sem þeir voru ekkert fluttir í, bara duglegir menn að reyna að afla sér tekna. Húsnæðið þar stendur autt. Það eru þessi dæmi, bara duglegt fólk að bjarga sér sem er ekki að fá úrlausn sinna mála. Mér finnst að svona úrræði geti bara ekki verið fyrir suma, að þú sért nákvæmlega á þessari þúfu akkúrat þessa stundina og skráður þar, heldur að þetta tjón sem viðkomandi einstaklingar eru sannarlega að verða fyrir skuli bara bætt. Mér finnst eðlilegt og rétt að við þingmenn höldum áfram að djöflast í þessu þangað til við fáum eðlilega úrlausn fyrir alla þá sem hafa orðið fyrir skaða vegna ástands sem þeir eru ekki valdir að.