breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þm. Guðbrandi Einarssyni um að við verðum að taka utan um öll þessi mál. Það er eitt að búa til, og það er auðvelt, einhverja almenna reglu en við vitum að almennar reglur ná aldrei yfir allt saman. Þess vegna var okkur þingmönnum lofað, ekki bara þingmönnum stjórnarandstöðunnar heldur öllum þingmönnum sem voru í þessum hópi sem voru nokkurn veginn þingmenn Suðurkjördæmis og ég úr Suðvesturkjördæmi, að það yrði tekið utan um þessi mál. Þetta væri bara fyrsta skrefið í því að koma fólki í skjól. Við verðum að krefjast þess að ríkisstjórnin uppfylli það loforð því það er ekki bara eitthvert loforð um eitthvað. Á bak við hvert einasta dæmi sem hefur verið nefnt hér stendur fólk sem er búið að vinna að því alla sína ævi að koma sér þangað sem það var daginn sem hamfarirnar byrjuðu. Af hverju á þetta fólk ekki að fá sama stuðning? Hvaða afsökun er fyrir því að skilja þetta fólk eftir? Í mínum huga höfum við enga. Við þingmenn þurfum, rétt eins og hv. þingmaður sagði áðan, að berjast í því áfram að rödd þessa fólks heyrist hér inni, heyrist nógu hátt þangað til ríkisstjórnin sest niður og gerir eitthvað í málunum en segir ekki bara: Ja, við erum búin að bjarga hluta Grindvíkinga.