154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:00]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var mjög áhugaverð. Það sem vakti athygli mína sérstaklega var þegar hann talaði um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfaranna í Grindavíkurbæ, sem er í I. kafla frumvarpsins. Í II. kafla er fjallað um húsnæðisstuðning og svo í III. kafla um tímabundinn stuðning til greiðslu launa. Hann minntist á það að varðandi rekstrarstuðninginn er tekið mið af tekjufalli. Í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:

„Á grundvelli laganna gefst rekstraraðilum sem hafa orðið fyrir a.m.k. 40% tekjufalli, samanborið við sama almanaksmánuð árið áður, kostur á að sækja um beina styrki úr ríkissjóði. Hámark styrkfjárhæðar er margfeldi 600 þúsund kr., fjölda stöðugilda (að hámarki tíu) og tekjufallshlutfalls viðkomandi almanaksmánaðar …“

Hér er verið að miða við tekjufallið og líka starfsmannafjöldann. Síðan erum við með sérstakan styrk til greiðslu launa sem er með það að markmiði að stuðla að því að rekstraraðilar sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi, varðveitt viðskiptasambönd og hafið starfsemi á ný með stuttum fyrirvara. Mér finnst svolítið sérstakt að það sé verið að miða við fjölda starfsmanna þegar litið er til þess að hann fær launagreiðslurnar sérstaklega styrktar. Líka það að hérna er verið að viðhalda lágmarksstarfsemi, varðveita viðskiptasambönd og annað, hvort það sé rétt farið að tengja við tekjufall, hvort það væri ekki eðlilegra að miða við þarfir fyrirtækja til að halda starfseminni gangandi í hverju og einu tilviki, miða við það hvaða viðskiptasambönd þarf að varðveita og hvernig (Forseti hringir.) á að gera það með fjármagni og svo að það sé hægt að hefja starfsemi með stuttum fyrirvara. — Ég ætla að koma seinna með fyrirspurn varðandi önnur atriði út af rekstri.