breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er þannig með þessar reglur sem settar voru fyrir Grindavík að þær fylgdu eiginlega nákvæmlega þeirri uppsetningu sem gerð var í heimsfaraldri. Ég held að það hefði mátt fara svolítið dýpra ofan í að hugsa lausnina vegna þess að þegar heimsfaraldurinn átti sér stað þá bjuggum við hreinlega við allt annað umhverfi. Við bjuggum við það að heilu fyrirtækin töpuðu öllum sínum viðskiptavinum, og þá er ég að tala sérstaklega um ferðaþjónustufyrirtækin. Það var bara enginn viðskiptavinur lengur. Það er svolítið annað ástand heldur en er í Grindavík. Við hefðum átt frekar að horfa á hvað við þurfum að gera til að hjálpa t.d. þessum fyrirtækjum að færa sig á aðra staði. Hvernig eigum við að hjálpa þessum fyrirtækjum að fá vinnu ef enga vinnu er að fá í Grindavík, þ.e. enga viðskiptavini? Ef það er ekki verið að koma inn með skipin þá þarf ekki aðstoð við að laga þau. Hvernig getum við hjálpað þeim að bjóða upp á sömu hluti annars staðar? Jú, það er eitthvert rekstrartap og annað en ég hefði viljað sjá okkur hugsa allt annað módel vegna þess að þetta eru aðrar aðstæður. Ég held að við hefðum getað lagt meiri tíma í að gera það og svoleiðis þurfum við að eiga tilbúið fyrir framtíðina.