154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:04]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta er einmitt það sem ég ætlaði að koma inn á og gafst ekki tími til, þ.e. sú aðferðafræði sem hér er undir að miða við tekjufall og líka fjölda starfsmanna til að gera ákveðna hluti. Hv. þingmaður kemur inn á að það hafi verið notuð aðferðafræði úr Covid-heimsfaraldrinum og þá er spurningin: Hver er munurinn á Covid-heimsfaraldrinum og jarðhræringunum í Grindavík? Hver eru áhrifin? Í Covid mátti fólk ekki hafa samskipti sín á milli. Það er grundvallaratriði. Í jarðhræringunum í Grindavík verður eignatjón, það er ekki hægt að hafa starfsemi í Grindavík út af áhættu á jarðeldum og jarðsprungum og öðru slíku, sem er allt annars eðlis. Það sem þarf að gera náttúrlega er að horfa á það að bæta eignirnar og það er það sem við sjáum að er ekki verið að gera. Það er verið að beita Covid-aðferðafræði á jarðeldana og þá sér maður vandamálin og maður sér það sérstaklega varðandi húsnæðið. Fólk fær bara greitt ef það á lögheimili þar en svo er kannski fólk sem er skráð með lögheimili í hluta húsnæðisins sem það býr í og þá fær það bara borgað fyrir þann hluta. Það er ekkert verið að horfa á eignirnar. Eða fyrirtæki sem eru með tekjur fram í tímann, t.d. nýsköpunarfyrirtækið Sæbýli sem ræktar sæeyru. Það er búið að vera að berjast í mörg ár við að rækta sæeyru og var með um eina og hálfa milljón sæeyrna í eldisstöð sinni sem eru núna komin í hálfa milljón. Það er hægt að hjálpa þessum fyrirtækjum. En tekjufallið er ekki neitt, fyrirtækið hafði engar tekjur í fyrra, þannig 40% markið er ekki undir þar og svo er starfsmannafjöldinn annað atriði. Það hefði verið miklu einfaldara að styðja framtíðartekjur þess fyrirtækis, missi af framtíðartekjum, það hefði verið eðlilegra. Líka það að hjálpa fyrirtækjum að flytja annað, af hættusvæðinu, (Forseti hringir.) og að koma til baka ef í það fer. (Forseti hringir.) Það þarf auðvitað að reikna það út. Ég tek því algjörlega og heils hugar (Forseti hringir.) undir með hv. þingmanni um aðferðafræðina; það að beita Covid-aðferðafræðinni (Forseti hringir.) á þetta er ekki að skila nægum árangri. Það eru margir sem falla milli skips og bryggju.