154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:07]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið og er alveg sammála hv. þingmanni að það að nota Covid-aðferðafræðina beint bara hreinlega gekk ekki. Það er nefnilega dálítið annað, segjum t.d. að reka hótel og ferðamenn koma ekki í eitt ár heldur en að vera með hótel inni á svæði sem er orðið hættusvæði þangað sem fólk vill ekki koma. Það er bara tvennt ólíkt. Já, það eru einhver fyrirtæki eins og t.d. veitingastaðirnir og aðrir í Grindavík sem eru kannski með svipað ástand og var í faraldrinum en fyrir stærstan hluta fyrirtækjanna er þetta allt annað sem þau eru að upplifa. Ég er líka algerlega sammála hv. þingmanni þegar kemur að nýsköpunarfyrirtækjum eins og Sæbýli, sem ég kallaði óvart Sæeyru áðan en það er af því að það er það sem þau búa til. Þetta er gott dæmi því að þetta fellur ekki inn í neitt af módelunum. Þetta fær ekki náttúruhamfaratryggingar, þetta fellur ekki undir afurðasjóðinn, sem við erum að fara að ræða næst, af því að þetta er eldi. Allt saman eru þetta hlutir sem þarf að tækla, svo ekki sé minnst á atvinnuhúsnæðið. Það er ekkert verið að horfa á það. Það er, nákvæmlega eins og hv. þingmaður nefndi, einn af aðalhlutum sem við þurfum að styðja varðandi fyrirtæki í rekstri vegna þess að þau eru með húsnæði sem annaðhvort er illa farið, er á hættusvæði eða mun ekki verða notað á þessum stað lengur. Þarna þurfum við að hjálpa fólki að opna fyrirtæki sín annars staðar.