154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:09]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar kannski að byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem átt hefur sér stað um þetta mál. Þó að hún hafi farið svolítið út um víðan völl er okkur bráðnauðsynlegt að fá að ræða málefni Grindavíkur hér í þingsal, ekki bara í einhverju skötulíki, og einstaka þingmenn hafa verið að reyna að koma málefnum Grindavíkur að í störfum þingsins en þá höfum við bara haft tvær mínútur í það og síðan ekki söguna meir, þannig að þessi umræða er bráðnauðsynleg og skýrir auðvitað ýmislegt sem þarf að takast á við.

Ég held að við verðum að vera svolítið raunhæf í þessu öllu saman, málefnum Grindavíkur yfir höfuð. Mig langar að minna á það að í Vestmannaeyjum bjuggu fyrir 50 árum síðan 5.300 manns. Í dag búa þar 4.600. Fjöldi íbúa í Vestmannaeyjum hefur ekki náð þeim fjölda sem var fyrir gos. Það eru liðin 50 ár síðan. Þá spyr maður sig: Hvenær munu Grindvíkingar ná þeim fjölda aftur sem bjó í Grindavík? Eru einhverjar líkur á því að það gerist á næstunni? Við erum búin að upplifa fimm gos núna síðan í desember í þessari svokölluðu Sundhnúksgígaröð. Við erum búin að upplifa átta gos á þessu svæði síðan þetta hófst allt saman. Maður veltir fyrir sér: Hver er framtíð Grindavíkur yfir höfuð og hvernig ber okkur þá að takast á við þau vandamál sem upp hafa komið, sem eru alveg ótrúlega mörg? Ég minni bara á að bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að skólahald fari ekki fram í Grindavík á hausti komanda þannig að það verður ekki skólastarf fyrr en í fyrsta lagi haustið 2025. Íþróttastarf yngri barna hefur verið lagt af að mestu leyti og börn beðin að taka þátt í íþróttastarfi í því hverfi eða í því sveitarfélagi sem þau búa í. Þetta er gjörbylting á stöðunni. Lengi vel var fólk að leyfa sér að vona að fljótt og vel myndi þetta ganga yfir og fólk gæti þá farið heim en sú er aldeilis ekki raunin. Við sjáum það bara við síðasta gos, sem er ekki lokið enn þá, að það er búið að bætast við þann fjölda sem hefur óskað eftir uppkaupum. Það er bara hinn kaldi veruleiki. Fólk óttast núna um stöðu sína og er að mínu viti farið að velta fyrir sér til framtíðar, hvað á maður segja, búsetu annars staðar en í Grindavík. Það er ekkert auðvelt að selja ofan af sér og fjárfesta annars staðar og halda svo að maður geti bara selt ef manni dettur í hug og flutt til baka. Það er ýmislegt sem þarf að gerast áður en slíkir hlutir verða að veruleika, þannig að verum raunsæ. Málið er flókið, erfitt og við vitum ekki hvernig þetta allt saman fer.

Þessar aðgerðir einar og sér duga engan veginn. Við heyrðum það bara, það var tekin umræða í efnahags- og viðskiptanefnd í morgun um þessi mál og þar fengum við fulltrúa frá innviðaráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu um framlengingu á þessum úrræðum og við erum auðvitað að sjá að þau eru bara að lognast út af. Búsetustuðningurinn hægt og hægt lognast út af af því að fólk er búið að kaupa sér annars staðar. Þá er það ekki að fá leigustyrk. Nýtingin á rekstrarstyrkjum hefur verið mjög lítil og launastuðningurinn fer auðvitað bara minnkandi af því að við sjáum að það er verið að segja upp fólki. Þorbjörn er búinn að segja upp fólki og þar með slíta ráðningarsambandi og fleiri fyrirtæki hafa verið að gera það. Sveitarfélagið sjálft, sem er búið að segja upp 150 manns, fellur ekki undir þetta úrræði þannig að við vitum um fleiri hundruð manns sem eru búnir að missa ráðningarsamband sitt við sinn atvinnurekanda uppi í Grindavík. Það fólk er auðvitað bara að fara að leita sér að vinnu og störfum annars staðar til lengri tíma. Fólk verður að vera raunsætt og horfa á hlutina eins og þeir eru í því samhengi sem við erum að upplifa; endalaus eldgos, sprungumyndanir og þess háttar sem við sjáum ekkert fyrir endann á. En allt sem við gerum til hjálpar er af hinu góða.