154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:15]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni að umræðurnar um þetta frumvarp hafa verið mjög upplýsandi og gagnlegar. Frumvarpið er auðvitað eingöngu um að framlengja úrræði sem fyrir voru og þau eru ekki mikið breytt. Eins og hv. þingmaður kom inn á hafa rekstrarstyrkir ekki mikið verið notaðir og húsnæðisstuðningurinn fer væntanlega dvínandi eftir því sem fleiri fá sölupeningana frá Þórkötlu og geta keypt sér húsnæði annars staðar og þurfa ekki að bera kostnað af tveimur heimilum og svo launastuðningurinn, við vitum ekki alveg hvernig staðan verður og eins og hv. þingmaður benti á þá eru fyrirtæki að gefast upp.

En það sem mér finnst vera alvarlegt er að eini stjórnarliðinn sem tók þátt í þessari umræðu var hæstv. ráðherra sem mælti fyrir málinu. Það hefur enginn stjórnarþingmaður tekið þátt í umræðum um úrræði til lausnar vandamálum Grindvíkinga sem þurfa að búa við óhugsanlegar aðstæður. Þetta finnst mér mjög alvarlegt vegna þess að við í minni hlutanum getum haft alls konar góðar meiningar og góðar hugmyndir en við erum ekki í meiri hluta, við erum ekki með framkvæmdarvaldið á okkar snærum. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af þessu líkt og ég, að stjórnarliðar skuli ekki hafa tekið þátt í þessum umræðum eða a.m.k. ekki gefið þeim sýnilegan gaum.