154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:17]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég var nú svo sem ekkert farinn að velta þessu upp, hverjir hefðu sérstaklega tekið þátt í þessari umræðu. Ég var kannski svo upptekinn af því að fá að tjá mig í þessu máli að ég var ekkert að taka sérstaklega eftir því en auðvitað þegar hv. þingmaður bendir á það að hér erum við í minni hlutanum bara galandi eins og hænur á priki — og maður veit svo sem ekkert hvað kemur út úr því. Ég hef ekki orðið þess var hér í þinginu að á okkur í stjórnarandstöðunni hafi verið mikið hlustað, við höfum ekki komið mörgu í gegn sem við hefðum viljað setja á oddinn. Eins og hv. þingmaður bendir á, framkvæmdarvaldið liggur hjá meiri hluta þingsins en ekki hjá okkur. Þau hafa valið sína ráðherra og framkvæmdarvaldið liggur þar. Ákvörðunartakan virðist vera fyrirframgefin inni í nefndunum í samráði stjórnmálaflokkanna sem sitja þar í meiri hluta. Vissulega er þetta áhyggjuefni, alla vega fyrir mig sem Suðurnesjamann og ég skil vel að hv. þm. Oddný Harðardóttir skuli benda á þetta, að þingmenn kjördæmisins hafi ekki verið hér að taka þátt í þessari umræðu með okkur, því að þetta skiptir auðvitað bara svæðið allt miklu máli, auðvitað fyrst og fremst Grindavík en áskorunin fyrir svæðið er mikil og mikið vildi ég að við Suðurnesjamenn gætum tekið utan um alla þá Grindvíkinga sem hafa leitað til okkar í þeirri von að geta hafið nýtt líf og öðlast kannski sömu lífsgæði og þau höfðu í Grindavík. Mikið vonast ég til þess að við getum uppfyllt óskir þeirra en til þess þurfum við líka aðstoð frá þeim meiri hluta sem hér situr.