154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:20]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Við höfum bent á það mörg í þessari umræðu að stjórnarliðar og ríkisstjórnin hafi verið sein til að taka af skarið og fólkið í Grindavík hefur þurft að bíða eftir lausnum. Vissulega eru margar lausnir komnar á borðið en þær duga ekki fyrir alla. Það er búið að segja okkur í efnahags- og viðskiptanefnd að það komi ekki fleiri frumvörp inn í þingið þannig að þau málefni sem við höfum verið að draga hér upp og eru óleyst verða ekki leyst fyrr en á næsta þingi, í haust einhvern tímann, í fyrsta lagi, nema við í nefndinni tökum okkur til og skrifum breytingartillögur við þetta frumvarp og fáum meiri hlutann í efnahags- og viðskiptanefnd til að tala um það við okkur hvað það er sem stendur út af. Sjálfsagt getum við ekki látið hvað sem er falla undir þetta frumvarp en við gætum lagst yfir það hvernig við getum bætt það, hvernig við getum gert það betur, hvernig við getum þá mætt þeim hópum sem var búið að lofa okkur að ætti að mæta en ekkert bólar á þeim lausnum.

Við erum á eftir að fara að tala um afurðasjóð fyrir framleiðslu í Grindavík til að verja þau tjóni ef þau vinna í Grindavík og það gerist eitthvað hræðilegt. En það eru svo mörg fyrirtæki sem standa þarna fyrir utan eins og við höfum farið vel yfir, t.d. þau sem hafa þurft að fara og geta ekki verið neins staðar annars staðar, ég tala nú ekki um fjölskyldufyrirtækin þar sem bæði rekstur heimilis og fyrirtækis er einhvern veginn í sömu púllíu. (Forseti hringir.) Þau standa líka fyrir utan allt saman. (Forseti hringir.) En ég vil spyrja hv. þingmann hvort það sé ekki bara ráðið að við reynum aðeins að leggjast yfir frumvarpið og athuga hvernig við getum bætt það.