154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:22]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Umsagnartími í venjulegu árferði er tvær vikur en núna er hann einhverjir tveir eða þrír dagar. Umþóttunartími þeirra sem vilja veita umsögn um þetta mál er bara lítill sem enginn. Þannig að það er spurning hversu mikið ráðrúm gefst hjá fólki til að koma með umsagnir og athugasemdir við þessa lagasmíð. Ég ber þá von í brjósti að þeir sem koma fyrir nefndina, og við höfum óskað eftir því að þeir aðilar sem eru fulltrúar smærri fyrirtækja í Grindavík komi fyrir nefndina, geti þá ýtt á einhver þau úrræði sem þeir telja að henti þeim. Ég er ekki að upplifa að einhver afurðasjóður sé að hjálpa þessum fyrirtækjum, þessum litlu fyrirtækjum í Grindavík, þrátt fyrir góðan vilja um að gera eitthvað, meira en gert hefur verið, en þá bíð ég bara eftir því, ef nefndadagur verður á föstudaginn, að við fáum inn þennan hóp sérstaklega, til að leiðbeina okkur með það hvað þau vilji núna og að við getum fengið nefndina til að fallast á að beita einhverjum þeim úrræðum þeim til handa sem ekki hefur verið gert hingað til. Ég ber þá von í brjósti að það verði á okkur hlustað, eða kannski ekki á okkur því að það er vanalega ekki gert en á þá aðila sem koma fyrir nefndina, sem eru auðvitað margir hverjir bara komnir að fótum fram. Fyrirtækin standa bara lokuð, þau eru með afborganir af lánunum sínum. Þau hafa litlar sem engar tekjur nema þá kannski bara rétt til að redda laununum en það stendur bara upp á þau að borga afborganir og vaxtagreiðslur. (Forseti hringir.) Einhverjir hafa verið í einhverjum greiðslufresti en hann verður ekki endalaus.