154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:25]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og tek heils hugar undir athugasemdir hv. þingmanns um hversu góðar þessar umræður hafa verið og að við þurfum að hlusta á þær og að við þurfum að gera eitthvað í þeim. Mig langaði í fyrra andsvarinu að spyrja hv. þingmann aðeins út í það sem hann kom inn á varðandi að það eru margar mismunandi sviðsmyndir um það hvernig hlutirnir munu verða í Grindavík á næstu vikum, mánuðum og árum og jafnvel áratugum. Sumar eru ljósar, að þetta klárist allt núna, að það hætti að gjósa á eftir og svo hætti þessi umbrot á Reykjanesi og við séum bara búin með þetta. Svartari sviðsmyndirnar eru þær að þetta haldi áfram lengi. Mig langaði að spyrja hv. þingmann, ef við horfum á þessar því miður svartari sviðsmyndir þar sem fyrirtækin eru búin að segja upp starfsfólkinu, þar sem skólar opna jafnvel ekki aftur: Hvaða ný vandamál sér hv. þingmaður fyrir sér að geti komið upp ef þetta dregst á langinn og við sjáum ekki fyrir endann á þessu jafnvel svo árum skiptir?