154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:26]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er erfitt að sjá fyrir sér hvaða vandamál geti fylgt svörtustu sviðsmyndinni, eða svartri sviðsmynd. Ég á erfitt með að tjá mig eitthvað nákvæmlega um það. Við vitum þó að svartasta sviðsmyndin er auðvitað sú að ekki verði búandi í Grindavík og að fyrirtæki geti ekki lifað þar og starfað. Það er hin svarta sviðsmynd. Það þýðir auðvitað að sveitarfélagið sem slíkt mun bara leggjast af. Það held ég að hljóti að vera hin svarta sviðsmynd. Hin sviðsmyndin sem hv. þingmaður nefndi hér, bjartari sviðsmyndin, að það fari eins og sumir jarðfræðingar spá og þessum óróa ljúki núna í sumar og hægt verði að hefja uppbyggingu, mun vonandi rætast en það bíða okkar fjöldamörg verkefni þrátt fyrir góða sviðsmynd. Ég þori ekkert að hugsa um þessa svörtu sviðsmynd. Við viljum ekki endilega hugsa hana til enda en við þurfum samt að hafa hana á blaði einhvern veginn og teikna upp. Hv. þingmaður hefur starfað innan almannavarnageirans og þekkir miklu betur en mörg okkar hvernig þeir þurfa að bregðast við svörtum sviðsmyndum. Ég held að við höfum ekki alveg gert það.

Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni andlega partinn og félagslega þáttinn. Það að tapa samfélaginu sínu er bara eitt og sér stórt og mikið mál, fyrir lítil börn að missa vinina sína, börn sem áttu vini í næsta húsi, skólasamfélagið sitt, íþróttafélagið sitt. Úrvinnslan úr slíkum áföllum hlýtur að þurfa að eiga sér stað. Hún er kannski komin af stað að einhverju leyti og maður sér það auðvitað. Það hvernig íþróttafélagið í Grindavík hefur haldið utan um hópinn í Smáranum og hjálpað krökkunum að halda áfram er aðdáunarvert að sjá en það þarf örugglega miklu meira til. En svarta sviðsmyndin er auðvitað sú að ekki verði við neitt ráðið.