breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég vil alls ekki enda þessa umræðu á svörtum sviðsmyndum heldur langar mig að fá hv. þingmann til að koma í smá hugarflug með mér. Það er nefnilega þannig að þegar við sjáum svörtu sviðsmyndirnar þá þurfum við að búa til framtíðarsýn sem við öll getum stefnt að. Sú framtíðarsýn er í mínum huga að byggja upp og gera Suðurnes enn öflugri en þau eru í dag. Að virkja hinn frábæra anda sem hefur verið í Grindavík, virkja samhuginn hjá öllum öðrum byggðum á Suðurnesjum og að við förum að byggja upp stórt og flott samfélag á Suðurnesjum. Til þess þurfum við eflaust að sameina einhver sveitarfélög. Við þurfum að hugsa stórt. Við þurfum eflaust að finna leiðir til þess að ríkið taki einhvern þátt í þeirri uppbyggingu. Mig langar að enda á því að spyrja hv. þingmann hver hans sýn er á bjartari og betri Suðurnes framtíðarinnar.