breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég er alveg til í vangaveltur um bjarta framtíðarsýn fyrir Suðurnes. Reykjanesbær er 30 ára á þessu ári, eftir að Keflavík, Njarðvík og Hafnir sameinuðust. Úr því varð þetta stóra og sterka sveitarfélag. Við erum búin að sjá aðdáunarverð viðbrögð annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum við því ástandi sem skapaðist í Grindavík. Sveitarfélögin voru boðin og búin til að taka á móti fólki, sinna börnunum, koma þeim í skóla, koma litlu börnunum á leikskóla og hjálpa fólki í öllum þeim aðstæðum sem gátu komið upp. Þetta sýnir samstarfsvilja samfélagsins á Suðurnesjum, og ég ætla bara að leyfa mér að segja það uppi í pontu: Núna eigum við að sameina þessi sveitarfélög; Voga, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Grindavík. Við getum bara heitið Suðurnesjabær, svo ég komi með tillögu að nafni, af því við erum Suðurnesjafólk. Ég held að það myndi hljóma ágætlega. Við myndum búa til sterkt sveitarfélag. Reykjanesbær er að sýna einn besta rekstur sveitarfélags á Íslandi núna í ársreikningauppgjöri sem hefur verið samþykkt í bæjarstjórn. Þetta sveitarfélag er orðið mjög sterkt. Suðurnesjabær stendur líka mjög vel. Vogar eru á réttri leið. Grindavík er í sárum núna og þess vegna er eðlilegt og rétt að hin sveitarfélögin taki utan um þá stöðu sem þar er uppi og við vinnum öll úr henni. Það var ekki gróði fyrir Vestur-Þýskaland að sameinast Austur-Þýskalandi á sínum tíma en til lengri tíma var það gott. Og það er gott fyrir Suðurnesin að sveitarfélögin séu sterk eining sem getur tekið utan um alla þá sem búa á Suðurnesjum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)