154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:33]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar. Markmiðið er að treysta áframhaldandi atvinnustarfsemi í Grindavíkurbæ með því að gefa atvinnurekendum kost á að sækja um fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar óbeint tjón á afurðum og hráefni vegna hamfaranna. Það liggur fyrir að fyrirtæki í t.d. matvælaframleiðslu geta ekki tryggt sig gegn slíku tjóni með hefðbundnum leiðum og Náttúruhamfaratryggingar Íslands tryggja eingöngu beint tjón, þ.e. þetta eru afleidd tjón sem við erum hér að fjalla um. Áhyggjur hafa risið vegna þess, verði eldgos eða önnur náttúruvá tengd þeim, sem leiða til þess að yfirgefa þarf svæðið skyndilega, að hráefni og afurðir sem unnar eru í Grindavík liggi undir skemmdum með tilheyrandi óhagræði fyrir atvinnulíf í bænum.

Úrræðið er hluti af tillögum ríkisstjórnarinnar um frekari stuðning við heimili og fyrirtæki í Grindavík sem kynntar voru þann 17. maí sl. og um hefur verið fjallað m.a. hér. Ákall hefur verið eftir stuðningsúrræði frá rekstraraðilum sem nú starfa í bænum enda fást slík tjón ekki bætt með neinu móti. Undir venjulegum kringumstæðum gætu fyrirtæki í Grindavík keypt sér vátryggingu gegn slíku óbeinu tjóni en vegna þeirra náttúruhamfara sem nú geisa þá standa slíkar tryggingar ekki til boða.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að settur verði á fót sérstakur sjóður, Afurðasjóður Grindavíkurbæjar, sem rekstraraðilar, sem verða fyrir meiri háttar óbeinu tjóni á matvælum og fóðri vegna náttúruhamfara, geta sótt um styrk til. Sjóðurinn verður skipaður stjórn þriggja aðila sem hefur það hlutverk að meta og taka ákvarðanir um afgreiðslu umsókna og styrkveitinga. Stjórn sjóðsins er heimilt að ákveða styrkhlutfall og eigin áhættu mismunandi eftir atvinnugreinum og tegundum eigna og taka í því efni m.a. mið af rekstraráhættu, stærð félaga og umfangi tjóns. Þetta fyrirkomulag svipar til þess sem er nú í gildi samkvæmt lögum nr. 49/2009, um Bjargráðasjóð. Sá sjóður er í eigu ríkisins og hefur það hlutverk að veita einstaklingum og félögum fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar beint tjón í landbúnaði af völdum náttúruhamfara.

Gildissvið frumvarpsins gerir ráð fyrir að um tímabundið úrræði sé að ræða. Þannig er það skilyrði að tjón hafi orðið á tímabilinu frá og með gildistöku frumvarpsins til og með 31. desember 2024. Líkt og með önnur úrræði stjórnvalda vegna náttúruhamfaranna í Grindavík, þá verður þörf fyrir framlengingu úrræðisins metin með hliðsjón af því hvernig jarðhræringar og eldsumbrot á svæðinu munu þróast með tímanum, enda óvissan um framvinduna og tjónið í Grindavík enn mikil eins og við þekkjum.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að ekki verði veitt fjárhagsaðstoð vegna tjóns sem nýtur almennrar tryggingaverndar eða hægt er að fá bætt á annan hátt, t.d. á grundvelli ákvæða laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands eða áðurnefndra laga um Bjargráðasjóð. Fjármögnun sjóðsins verður á þann veg að aðeins verður veitt fé til sjóðsins eftir að tjón hefur átt sér stað sem fellur undir gildissvið frumvarpsins. Ekki er því ætlunin að sjóðurinn hljóti framlög úr ríkissjóði óháð því hvort tjón hafi átt sér stað. Þegar tjónsatburður sem fellur undir gildissvið frumvarpsins hefur átt sér stað verður að meta hversu mikið fé skal veita til sjóðsins. Styrkveiting sjóðsins mun síðan takmarkast við þá fjárveitingu sem honum hefur verið veitt.

Við mat á því hver fjárþörf sjóðsins gæti orðið var sérstaklega litið til verðmætis þeirra sjávarafurða sem gætu verið í Grindavík á hverjum tíma en ætla má að meiri hluti fjárhagslegs stuðnings sjóðsins muni ná til þeirra afurða. Það mat leiddi í ljós að sjávarafurðir í Grindavík gætu numið í kringum 850 millj. kr. Að þeim forsendum gefnum að verðmætustu afurðirnar séu í sjávarútvegi og að ekki yrði um altjón að ræða þá má gróflega áætla að ef til tjóns kæmi þá geti það numið allt að 400 millj. kr., að teknu tilliti til eigin áhættu rekstraraðila. Af þeim sökum er í frumvarpinu gert ráð fyrir að fjárveiting ríkissjóðs til sjóðsins muni ekki nema hærri upphæð en 400 millj. kr., óháð því hvort tjón hafi farið fram úr þeim mörkum.

Ég vil geta í þessu sambandi í ljósi frétta sem bárust í gær um að Þorbjörn hefði sagt upp starfsfólki að Þorbjörn hefur auðvitað ríkar aflaheimildir í Grindavík og í ljósi þess má áætla, ef staðið verður við það áfram, að hér gæti verið umtalsvert lægri fjárhæðir að ræða í þessu samhengi.

Virðulegi forseti. Frumvarpið er liður í stuðningi við áframhaldandi atvinnustarfsemi í Grindavíkurbæ með því að gefa atvinnurekendum tækifæri til þess að sækja um fjárhagsaðstoð til að bæta meiriháttar tjón á afurðum sínum vegna jarðhræringanna.

Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.