Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegur forseti. Mig langar í mínu fyrra andsvari að fara aðeins í 9. gr. þar sem segir m.a., með leyfi forseta: „Ef vettvangi er spillt áður en sjóðnum gefst kostur á að leggja mat á tjónið skal stjórn synja umsókn.“ En það segir í byrjuninni á þessari grein að umsókn um styrk skuli berast sjóðnum svo fljótt sem kostur er í kjölfar tjónsins en eigi síðar en innan tveggja mánaða. Þá er spurningin: Hvað á viðkomandi að gera í tvo mánuði? Á hann að láta vettvanginn liggja? Er þetta eitthvert venjubundið verklag? Væri ekki rétt að kalla matsmann á svæðið strax eða óska bara eftir því að viðkomandi myndi skila myndum eða einhverri skýrslu því ekki getum við látið úldinn fisk liggja í tvo mánuði? Menn hljóta að spilla vettvangi innan tveggja mánaða.