Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er verið að tala um, eins og hv. þingmaður nefndi hér, að umsóknir berist sjóðnum svo fljótt sem kostur er og það líði helst ekki lengri tími en þessir tveir mánuðir. Nú verðum við líka að horfast í augu við það að við vitum ekkert hvort við komumst inn á svæðið og með hvaða hætti. Það er hægt að áætla, ef við erum að tala t.d. um sjávarafurðir þá getum við áætlað það magn sem var í húsi eða annað slíkt. Síðan er það auðvitað þannig að jú, viðkomandi aðili getur tekið myndir ef þess er kostur, farið inn á svæðið. Það eru ákveðin gögn í málinu. Þetta er ekkert óhefðbundið verklag. Eins og ég benti á í upphafi er þetta frumvarp byggt á fyrirkomulagi um Bjargráðasjóð. Kal í túnum t.d., menn eru að taka myndir, það eru gögn í málinu, en menn geta byrjað að vinna og undirbúa. (Forseti hringir.) Það er í rauninni bara verið að nýta tímaramma til þess að hægt sé að ganga hratt og örugglega frá málunum.