Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Svo að ég upplýsi hv. þm. Ingu Sæland um hvað ég átti við þá skipti ég í upphafi aðgerðum ríkisstjórnarinnar svolítið í þrennt. Fyrsti punktur var að koma fólki í skjól, sem snerist ekki um húsnæði heldur að bjarga fólki, bjarga lífi fólks. Næsti punktur var síðan húsnæðið og sá þriðji atvinnufyrirtækin sem við ræðum núna. Ég held að það sé óumdeilt að það var vel gert hvernig viðbrögðin við rýmingunum voru, eins illa og þær komu síðan við atvinnustarfsemi ýmiss konar. Mér dugar ekki sá stutti tími sem ég á eftir til að ræða húsnæðið en það var nú þetta sem lá í orðanna hljóðan hjá mér. Við erum góð í viðbrögðum, það þekkjum við af aldagömlu sambýli við náttúruöflin, (Forseti hringir.) en fyrirhyggjan lætur oft undan síga og slíka fyrirhyggju hefðum við átt að vera búin að sýna á undanförnum mánuðum til þess að hafa þetta mál betur ígrundað og undirbyggt.