Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég get bara tekið undir með hv. þingmanni hvað þetta varðar. Þetta frumvarp er eitt af þessum úrræðum sem lagt er til að farið sé í. Það var starfshópur stofnaður um atvinnulífið í Grindavík sem skilaði einhverjum greiningum og niðurstöðum og væntanlega hefur hugmyndin að þessu frumvarpi komið út úr þeim hugmyndum. En það væri auðvitað gagnlegt fyrir atvinnuveganefnd að fá þennan hóp og greiningarfyrirtækið sem fór yfir þessi mál til þess að nefndin og þingmennirnir sem eiga að vinna með frumvarpið átti sig á bakgrunninum og viti hvað stendur út af í þeim efnum.