Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég gat ekki annað en komið upp þegar ég hlustaði á hv. þm. Gísla Rafn Ólafsson lýsa því fallega yfir að atvinnuveganefnd myndi gera sitt besta og veita þessu máli allan sinn forgang. Það er auðvitað ekkert nema gott um það að segja að nefndir Alþingis ætli að bæta fyrir skussaskap ráðherranna. Það breytir ekki því að mér finnst að ræða þurfi af meiri krafti í þingsal að stundum er talað um tímasetningar og vinnubrögð og eitthvað í þá veru sem væl um form sem hafi ekki áhrif á niðurstöðu mála eða efnislegt inntak.
Mér finnst vanta mikið upp á skilning á ráðherrabekknum á því hvað það þýðir fyrir mál — því að það er hægt að tryggja þeim framgang — upp á vinnslu, upp á að þingið og hagsmunaaðilar fái nægan tíma til að gaumgæfa þau, til að rýna þau, til að eiga í einhverju heilbrigðu samtali sem er ekki bara nánast málamyndafundir fyrir nefndum Alþingis. Það skilar því alltaf að málin eru a.m.k. ekki jafn góð og þau hefðu getað verið.
Mig langaði að hlera hv. þingmann um þetta. Ég veit að nefndin mun öll leggja sig fram. Ég veit að það er einhugur í þingsal um að reyna að gera sem best úr þessu. En vikum og mánuðum saman hefur verið ákall frá fólki, fyrirtækjaeigendum, rekstraraðilum og atvinnulífinu um að þau gleymist ekki. Þau hafa gleymst. Hvað segir hv. þingmaður um þetta?